Lúxushelgi Tönju Ýrar með kærastanum

Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Ryan áttu notalega helgi fyrir norðan.
Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Ryan áttu notalega helgi fyrir norðan. Skjáskot/Instagram

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir átti notalega helgi með kærasta sínum Ryan fyrir norðan þar sem þau nutu þess besta sem Akureyri hefur upp á að bjóða. 

Tanja Ýr og Ryan hafa verið saman í rúmlega tvö ár, en hún flutti til Lundúna í byrjun 2022 og greindi frá því í stuttu síðar að hún væri komin með kærasta.

Síðastliðna helgi átti parið góða helgi á Akureyri þar sem þau fóru meðal annars í Skógarböðin, borðuðu góðan mat, skelltu sér í Bjórböðin og nutu þess að skoða náttúrufegurðina sem einkennir Norðurlandið. 

Tanja Ýr birti myndaröð frá helginni á Instagram með yfirskriftinni: „Besta helgin“.

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert