Íslenskt sumarhús til umfjöllunar í erlendu hönnunartímariti

Sumarhúsið hefur verið hannað og innréttað á afar sjarmerandi máta.
Sumarhúsið hefur verið hannað og innréttað á afar sjarmerandi máta. Samsett mynd

Á dögunum birtist umfjöllun um íslenskt sumarhús á Suðurlandi í virtu erlendu hönnunartímariti, Dwell Magazine. 

Sumarhúsið er í eigu Gylfa Óskarssonar og hafði verið notað af fjölskyldunni til margra ára. Árið 2020 var hins vegar ákveðið að stækka bústaðinn og var arkitektinn Hlynur Sævarsson hjá teiknistofunni Gláma Kím fenginn í verkið. 

Með sænsku yfirbragði

Á heimasíðu Gláma Kím kemur fram að sumarhúsið hafi verið smíðað fyrir rúmum 40 árum síðan, en að hugmyndin að viðbyggingunni hafi kviknað þegar fjölskyldan fór stækkandi. Viðbyggingin er staðsett aftan við eldri hluta hússins og eru þau tengd með tengigangi.

Húsið er klætt með standandi greniklæðningu sem hefur verið máluð með oxírauðum lit, en í tímaritinu er fjallað um litinn og arfleið hans til Svíþjóðar á skemmtilegan máta. Viðbyggingin er einkar formfögur með aukinni lofthæð og góðum gluggum. Hann er klæddur með ljósum við sem skapar notalega stemningu og bæði björt og stílhrein rými. 

View this post on Instagram

A post shared by Dwell (@dwellmagazine)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert