Á ári hverju bíða margir spenntir eftir að New York Times birti ítarlegan lista yfir bestu áfangastaði ársins. Nú hafa sérfræðingar tímaritsins tekið saman 52 áfangastaði um allan heim sem þeir mæla með að ferðast til árið 2024.
Flestir ættu að geta fengið ferðainnblástur frá listanum enda eru þar fjölbreyttir og spennandi áfangastaðir, allt frá Maui á Hawaii og Hurghada í Egyptalandi yfir í Salar de Uyni í Bólivíu.
Á listanum er einnig að finna skemmtilegan áfangastað sem er í miklu uppáhaldi hjá mörgum Íslendingum, sérstaklega yfir verslunarmannahelgina, en það eru Vestmannaeyjar sem eru í 35. sæti af 52.
Listi New York Times yfir bestu áfangastaðina 2024
- The Path of Totality, Norður-Ameríku
- París, Frakklandi
- Yamaguchi, Japan
- Nýja-Sjáland (með lest)
- Maui, Hawaii
- Baj Nwavja I’tah Kukveni, Arizona
- Singapore
- O'Higgins, Chile
- Ladkah, Indlandi
- Genf, Sviss
- Dóminíka, Karíbahafinu
- Manchester, Bretlandi
- Craters of the Moon, Idaho
- Baltimore, Maryland
- Uyni Salt Lake, Bólivíu
- Negombo, Srí Lanka
- Massa-Carrara, Ítalíu
- Bannau Brycheiniog, Wales
- Marokkó
- Valencia, Spáni
- Kansas City, Missouri
- Antananarivo, Madagaskar
- Yucatan skagi, Mexíkó
- Lake Toba, Indónesía
- Almaty, Kasakstan
- Quito, Ekvador
- Mingan Archipelago, Quebec
- Montgomery, Alabama
- Tasmanía, Ástralíu
- Waterford, Írlandi
- Tsavo-þjóðgarðurinn, Kenía
- Brasilía
- El Salvador
- Koh Her, Kambódíu
- Vestmannaeyjar, Íslandi
- Montevideo, Úrúgvæ
- Mustang, Nepal
- Vín, Austurríki
- Brisbane, Ástralíu
- Pasadena, Kaliforníu
- Hurghada, Egyptaland
- Boundary Waters, Minnesota
- Thessaloniki, Grikklandi
- Normandí, Frakklandi
- Grenada, Karíbahafinu
- El Camino de Costa Rica
- Albönsku Alparnir
- White Horse, Yukon
- Choquequirao, Perú
- Dresden, Þýskalandi
- Monarch Butterfly Biosphere Reserve, Mexíkó
- Flamingo, FloridaPar