Leikarinn Níels Thibaud Girerd og Sóley Guðmundsdóttir, starfsmaður á samskiptadeild KSÍ, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum.
„Við verðum þrjú í júlí,“ skrifaði Sóley í sameiginlegri færslu á Instagram.
Níels, sem er einnig þekktur sem Nilli, er menntaður leikari frá Listaháskóla Íslands. Hann hefur mikinn áhuga á óperu og hefur starfað hjá Íslensku óperunni. Sóley spilaði hins vegar knattspyrnu, er íþróttafræðingur og er með meistarapróf í blaða- og fréttamennsku. Nú starfar hún á samskiptadeild á skrifstofu KSÍ.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar parinu til hamingju.