Sophie og Birkir Bjarna eignuðust stúlku

Birkir Bjarnason og Sophie Gordon eru orðnir foreldrar.
Birkir Bjarnason og Sophie Gordon eru orðnir foreldrar. Ljósmynd/Instagram

Knattspyrnumaðurinn Birkir Bjarnason og franska fyrirsætan Sophie Gordon eignuðust stúlku þann 11. mars síðastliðinn. Stúlkan er fyrsta barn parsins saman. 

Bæði Birkir og Sophie deildu gleðifregnunum með fylgjendum sínum á Instagram í gær þar sem þau birtu krúttlega mynd af dótturinni sem hefur fengið nafnið Sofia Lív Birkisdóttir.

Birkir og Sophie eru búsett á Ítalíu um þessar mundir þar sem Birkir spilar með knattspyrnuliðinu Brescia. Hann hefur einnig leikið 113 landsleiki með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu og skorað í þeim 15 mörk. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

Birkir tilkynnti gleðifregnirnar á Instagram.
Birkir tilkynnti gleðifregnirnar á Instagram. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert