Fór heim af geðdeild og myrti móður sína

34 ára gamall maður sem myrti móður sína í gær var útskrifaður af geðlækni sama dag og hann framdi morðið.

Maðurinn hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða í nokkur ár. Í frétt á vg.no segir að móðir mannsins, sem var 61 árs gömul, hafi verið í sambandi við lögreglu vegna þess að hún hafði áhyggjur af syni sínum.

Maðurinn var útskrifaður af geðdeild á þriðjudagsmorgun, en lögreglan fann lík konunnar seint um kvöldið í bænum Larvík í Noregi. Flest bendir til að hún hafi verið myrt síðdegis eða um kvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert