Lagði sér andlit konu til munns

Lögreglubíll í Suður-Wales.
Lögreglubíll í Suður-Wales.

Karlmaður sem fannst á hótelherbergi í nágrenni Blackwood í Suður-Wales að leggja sér hluta úr andliti konu til munns, lést eftir að lögreglan skaut hann með rafbyssu. Fórnarlamb hans, ung kona, var með alvarlega áverka á andliti er að var komið og lést skömmu síðar.

Í frétt Telegraph segir að öryggisverðir á hótelinu hafi brotist inn í herbergið og komið að manninum við hinn óhugnanlega verknað. Konan var 22 ára gömul.

Maðurinn hét Matthew Williams og var 34 ára. Honum hafði verið sleppt úr fangelsi fyrir tveimur vikum en hann sat inni vegna árásar á þáverandi sambýliskonu sína. Hann hafði aðeins afplánað helming fimm ára dóms er honum var sleppt. Hann hafði frá því dvalið á hótelinu sem er m.a. ætlað afbrotamönnum á skilorði.

Willams lést í kjölfar þess að lögreglan skaut hann með rafbyssu. Hann þekkti  fórnarlamb sitt og hafði boðið henni upp á hótelherbergi í drykk.

Innra eftirlit lögreglunnar mun rannsaka dauða Williams þar sem hann lést er hann var í haldi lögreglunnar. 

Lögreglan telur að Williams hafi verið einn að verki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert