Hafa fundið flugrita vélarinnar

Talið er að vél­in hafi far­ist vegna veðurs.
Talið er að vél­in hafi far­ist vegna veðurs. AFP

Að minnsta kosti annar af flugritum farþegaþotu AirAsia er fundinn. Í morgun var greint frá því að sterk merki bærust frá honum um einn kílómetra austur af staðnum þar sem stél vélarinnar fannst. 

Köfurum tókst þó ekki að ná í flugritann þar sem hann var fastur undir braki úr flugvélinni. 

Vélin fórst hinn 28. desember síðastliðinn. Talið er að vél­in hafi far­ist vegna veðurs. Gögn úr flugritanum ættu að geta gefið gagnlegar upplýsingar vegna rannsóknar á slysinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert