Lindt-kaffihúsið opnað á ný

AFP

Lindt-kaffihúsið í Sydney í Ástralíu, sem lokað hefur verið í frá miðjum desember á síðasta ári vegna skotárásar, verður opnað á ný á föstudag kl. 10. Ástralska þjóðin var slegin eftir morðin en þau Katrina Dawson og Tori Johnson létu lífið í árásinni.

Man Haron Monis gekk inn á kaffihúsið hinn 15. desember sl. og gerði lögregla áhlaup um sextán klukkustundum síðar. Miklar skemmdir urðu á jarðhæð kaffihússins og hafa viðgerðir staðið yfir síðustu vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert