Annar útlendingur handtekinn

Grunsamlegur maður með bakpoka náðist á mynd í öryggismyndavél við …
Grunsamlegur maður með bakpoka náðist á mynd í öryggismyndavél við Erawan helgidóminn daginn sem árásin var gerð. AFP

Taílenska lögreglan hefur handtekið annan útlending í tengslum við mannskætt sprengjutilræði í miðborg Bangkok fyrir tveimur vikum. 

Maðurinn var handtekinn í Sa Kaeo héraði, austur af Bangkok, við landamæri Kambódíu. „Hann er sá sem er helst grunaður,“ segir Prayuth Chan-ocha forsætisráðherra Taílands. 

Í síðustu viku var útlendingur handtekinn í Bankok grunaður um aðild að sprengjutilræðinu við Erawan helgidóminn. 20 létust í árásinni. 

Búnaður til sprengjugerðar og tíu vegabréf fundust í íbúð í Nong Kok, úthverfi Bangkok í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert