Árásarmaðurinn nafngreindur

Maður skoðar frétt á rússneskum miðli sem birt hefur mynd …
Maður skoðar frétt á rússneskum miðli sem birt hefur mynd af árásarmanninum Akbarjon Djalilov. AFP

Maðurinn sem sprengdi sprengju í neðanjarðarlestarkerfi St. Pétursborgar með þeim afleiðingum að 14 létust og tugir særðust, hét Akbarjon Djalilov.

Hann bar einnig ábyrgð á sprengju sem komið var fyrir í annarri lest. Sérfræðingum tókst að aftengja þá sprengju svo hún sprakk ekki.

Lögreglan rannsakar árásina sem hryðjuverk. Um sjálfsmorðsárás var að ræða.

„Lögreglan hefur borið kennsl á manninn sem sprengdi sprengju um borð í lest í neðanjarðarlestarkerfi St. Pétursborgar,“ segir í yfirlýsingu frá stjórnvöldum. „Hann hét Akbarjon Djalilov.“

Í yfirlýsingunni segir að kennsl hafi verið borin á árásarmanninn með lífsýnarannsókn. Lífsýni úr honum fundust einnig á tösku sem önnur sprengja var í á annarri lestarstöð í borginni.

Einnig var stuðst við upptökur úr öryggismyndavélum við að bera kennsl á árásarmanninn. Yfirvöld í Kirgistan hafa sagt að maðurinn sé fæddur árið 1995, fæddur þar í landi en rússneskur ríkisborgari. Rússnesk yfirvöld hafa ekki staðfest það.

Kona leggur blóm á gólf lestarstöðvarinnar við Tæknistofnunina í nágrenni …
Kona leggur blóm á gólf lestarstöðvarinnar við Tæknistofnunina í nágrenni þess staðar þar sem sprengjan sprakk í lestinni í gær. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert