Cyrus styrkir fórnarlömb Harvey

Miley Cyrus.
Miley Cyrus. AFP

Söngkonan Miley Cyrus hefur tilkynnt að hún ætli að styrkja fórnarlömb fellibyljarins Harvey um 500.000 dollara, jafnvirði 52,6 milljóna íslenskra króna. 

Cyrus brotnaði niður þar sem hún kom fram í spjallþætti Ellen DeGeneres og ræddi eyðilegginguna sem fylgt hefur Harvey. Stór svæði í Houston eru enn undir vatni en tug­ir þúsunda húsa eru á flóðasvæðunum.

Ég vona að fólk geti reynt að ímynda sér hvernig það er þegar allt er tekið frá manni,“ sagði Cyrus en með styrknum fetar hún í fótspor Lea­on­ar­do DiCaprio, Söndru Bullock, Kim Kardashian og Beyonce, sem öll hafa lagt sitt af mörkum til styrktar fórnarlömbum náttúruhamfaranna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka