Bukayo Saka gæti misst af stórleik helgarinnar er lið hans Arsenal heimsækir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudaginn.
Arsenal er í toppsæti deildarinnar með 83 stig, stigi meira en Manchester City sem á þó leik til góða.
Manchester United er hins vegar í áttunda sæti og þarf á sigri að halda.
Á blaðamannafundi í dag viðurkenndi Mikel Arteta, stjóri Arsenal, að það væru efasemdir um þátttöku Bukayo Saka og Japanans Takehiro Tomiyasu í leiknum á sunnudaginn.
„Við æfum á morgun og þá kemur í ljós hvort þeir verði með,“ bætti Arteta við.