Útfærsla kvótakerfis gagnrýnd

Útfærsla kvótakerfisins byggist ekki á sanngjörnum grunni segir SÞ.

Útfærsla kvótakerfisins byggist ekki á sanngjörnum grunni segir SÞ. mbl.is/Brynjar Gauti

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna segir í úrskurði um íslenska fiskveiðikerfið, að það sé lögmætt markmið íslenskra stjórnvalda að vernda fiskistofna með kvótakerfi í fiskveiðum. Hins vegar hygli íslenska kerfið þeim sem upphaflega fengu úthlutað varanlegum kvóta og það byggist ekki á sanngirni.

Nefndin segir, að öll kvótakerfi, sem notuð eru til að stjórna aðgangi að takmörkuðum auðlindum, veiti kvótahöfum að sumu leyti forréttindi á kostað annarra án þess að að slíkt þurfi að vera óréttlátt.

Í tilfelli íslenska kvótakerfisins sé kveðið á um það í 1. grein laga um stjórn fiskveiða, að fiskistofnar við Ísland séu sameign íslensku þjóðarinnar. Hins vegar hafi sú viðmiðun, sem notuð var til að úthluta veiðikvótum í upphafi, og kunni að hafa verið eðlileg og hlutlaus aðferð þá, orðið varanleg þegar lögin tóku gildi og breytt upprunalegum nýtingarrétti á almannaeign í einkaeign. Kvótar, sem upprunalegir handhafar nýti ekki lengur, gangi kaupum og sölum á markaðsverði, og á leigumarkaði, í stað þess að þeir renni á ný til ríkisins og sé úthlutað að nýju með réttlátum og sanngjörnum hætti.

Segir mannréttindanefndin, að íslenska ríkið hafi ekki sýnt fram á, að þessi útfærsla á kvótakerfinu uppfylli sanngirniskröfur.  Segir nefndin loks, að í þessu máli sé niðurstaðan sú að þau forréttindi, sem upprunalegir kvótahafar hafi notið, byggist ekki á sanngjörnum grunni.

Úrskurður mannréttindanefndar SÞ

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Gæti kostað 23-27 milljarða á ári

11:58 Kostnaður ríkissjóðs við nýtt húsnæðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar húsnæðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þúsund á ári. Meira »
Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson í héraðsdómi .

Dómara bar að taka afstöðu

11:48 Hæstiréttur hefur lagt það fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka til efnisúrlausnar kröfu sakborninga í Al-Thani-málinu svonefnda um afhendingu ýmissa rafrænna gagna í málinu. Kröfu þeirra um að 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda verði felld út úr málinu var hins vegar vísað frá dómi. Meira »

Stálu hjónarúmi og ísskáp

11:29 Ýmiskonar rafmagnstæki, hjónarúm, hreindýraskinn og lok af rafmagnssetlaug er á meðal þess sem innbrotsþjófar höfðu á brott með sér úr innbrotum í þrjá sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi nú í apríl og maí. Meira »

Hallgrímur Hallgrímsson: Ræningjar og ribbaldar

Hallgrímur Hallgrímsson
11:07 „Vegna umfjöllunar sumra fjölmiðla um veiðar skipa í eigu Íslendinga við strendur Máritaníu og víðar langar mig til þess að leggja orð í belg“, segir Hallgrímur Hallgrímsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Borgin áfrýjar til Hæstaréttar

Ráðhús Reykjavíkur.
10:57 Reykjavíkurborg hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni beri að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna auk vaxta, framlag vegna framboðs til borgarstjórnar. Meira »

Skotárásarmaður áfrýjaði dómi

Frá því skotárásarmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
11:18 Karlmaður sem í Héraðsdómi Reykjavíkur var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir þátt sinn í skotárásarmáli sem upp kom í Bryggjuhverfinu í Reykjavík hefur áfrýjað dómi sínum til Hæstaréttar. Þrír voru ákærðir í málinu og stendur niðurstaða héraðsdóms vegna tveggja. Meira »

Hafa áhyggjur af rekstri Lyfjastofnunar

11:03 Ríkisendurskoðun telur áhyggjuefni hversu illa gengur að halda rekstri Lyfjastofnunar innan þess ramma sem Alþingi ákveður í fjárlögum. Lyfjastofnun og velferðarráðuneytið þurfi að tryggja að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við þá ákvörðun. Meira »

Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
10:36 Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins. Meira »

Þref um hrognaverð, olía fyrir grásleppu

Vinnsla á grásleppu hefur skapað vinnu í landi, en fram til þessa hafa sjómenn yfirleitt ...
10:30 Á fiskmörkuðum hafa í vor fengist 70-75 krónur fyrir kíló af hrognalausri grásleppu. Aflaverðmæti grásleppunnar á vertíðinni gæti því orðið rúmlega 300 milljónir króna og útflutningsverðmætið rúmlega tvöföld sú upphæð, samkvæmt áætlun Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Meira »

Húsnæðisbótakerfi óháð búsetuformi

10:06 Vinnuhópur velferðarráðherra um húsnæðismál leggur til að tekið verði upp eitt húsnæðisbótakerfi fyrir alla landsmenn, óháð búsetuformi. Gert er ráð fyrir að húsnæðisbætur taki mið af fjölskyldustærð. Meira »

Dregur úr brottkasti

10:15 Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% af lönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010. Meira »

Lenti í vanda á Lakavegi

09:56 Björgunarsveitinn Kyndill á Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði ökumann á Lakavegi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var um erlendan ferðamann að ræða. Hann hafði ekið framhjá lokunum á veginum sem er ekki búið að opna fyrir umferð. Meira »

Hækkar um eina krónu

Íslenskar getraunir.
09:09 Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag. Meira »

Sumarið loksins komið

Sprækir krakkar í sundi.
07:30 Sólþyrstir Íslendingar kepptust við að njóta veðurblíðunnar sem ríkti um allt land yfir helgina.  Meira »

Grunaðir um innbrot í bifreiðar

Lögregla.
06:21 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur ungum mönnum í gærkvöld, sem grunaðir eru um innbrot í bifreiðar í Breiðholti. Drengirnir eru á aldrinum 15-18 ára. Þá var annar maður kærður fyrir fíkniefnabrot. Meira »

Krapi og éljagangur á Fjarðarheiði

08:47 Aðalleiðir eru nú greiðfærar um allt land, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er þó krapi og éljagangur á Fjarðarheiði. Hellisheiði eystri er enn ófær. Meira »

Ganga þarf á varasjóð

Á fjórða tug fjölskyldna eru nú á biðlista hjá Íslenskri ættleiðingu eftir undirbúningsnámskeiði.
06:44 Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent innanríkisráðuneyti tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins og að þær ráðstafanir kunni að leiða til þess að ekki verði hægt að ljúka málum, sem þegar eru til meðferðar. Meira »

Hrapaði þegar bandið slitnaði

Um 30 til 40 metrar eru niður að sjó frá syllunni þar sem maðurinn lenti.
05:30 „Það er vel hægt að síga í einföldu bandi en hann ákvað að vera öruggur og síga í tvöföldu bandi. Hann var kominn svolítið áleiðis niður 12-15 metra stál í stapanum þegar bandið slitnaði og féll í frjálsu falli, á að giska sex til átta metra og lenti milli tveggja steina á syllu.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Góður stóll
Þessi ágæti stóll til sölu á kr. 3.500. Uppl. s. 696 8890...
Til sölu Schwinn 16" stúlknareiðhjól.
Mjög vel farið. Fjólublátt með körfu. Hjálpardekk fylgja. Verð 12.000 kr. Haf...
FORD TAURUS SES 2002
FORD TAURUS SES 2002 Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumar...
350 þús kr afsláttur.Palomino Colt 10/2007.
Palomino Colt 10/2007 Galvinseruð grind 2 Kúta Gasgrind Eldavél ísskápur miðstöð...
 
Til leigu í lágmúla

Til leigu er 75 m² skrifstofuhúsnæði í...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...