Niðurskurður til þjóðkirkju í nefnd

Innanríkisráðherra hefur skipað nefnd til að meta hvaða áhrif niðurskurður fjárveitinga hafi haft á starfsemi þjóðkirkjunnar og hverjar yrðu afleiðingarnar ef haldið yrði áfram á þeirri braut.

Nefndin kom saman til síns fyrsta fundar 4. ágúst og mun skila áliti til ráðherra fyrir 1. maí 2012.

Nefndin er þannig skipuð: Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi ráðherra, formaður, án tilnefningar, Oddur Einarsson, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu, án tilnefningar, sr. Gísli Jónasson, prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, tilnefndur af kirkjuráði, sr. Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur Suðurprófastsdæmis, tilnefnd af kirkjuráði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert