Leitaði að símanum og lenti á ljósastaur

Frá slysstaðnum í Grafarvogi.
Frá slysstaðnum í Grafarvogi.

Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en í einu þeirra var ekið á ljósastaur í Grafarvogi.

Ökumaðurinn, piltur um tvítugt, var fluttur á slysadeild en óhappið er rakið til þess að hann var að leita að símanum sínum og missti þá stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum.

Lögreglan segir að bíllinn sé talsvert skemmdur og hafi verið fjarlægður af vettvangi með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert