Að birta til undir brekkunni?

Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar Kristján Kristjánsson

Það var í raun síðasta skrefið á löngu ferðalagi, þegar öllum fastráðnum starfsmönnum Leikfélags Akureyrar var sagt upp í vikunni. Þó verður alls ekki skellt í lás í gamla Samkomuhúsinu undir brekkunni, og skrefið mætti því allt eins kalla það fyrsta í næstu ferð félagsins.

Starfsmennirnir sem sagt var upp eru fimm, þar af var einn leikari.

Nú verða spilin stokkuð og gefin upp á nýtt; Ragnheiður Skúladóttir var í vikunni ráðin listrænn stjórnandi fyrir næsta leikár og þessi fyrrverandi deildarforseti við Listaháskóla Íslands tekur þegar til starfa við að skipuleggja næsta leikár. Ráðningin er til níu mánaða.

Ragnheiður flytur til Akureyrar og ákveðið hefur verið að ráða fjóra leikara til félagsins fyrir næsta vetur. Þeir koma „að sunnan“ (eins og gjarnan er sagt í höfuðstað Norðurlands...) en einhverjir þeirra eiga þó rætur að rekja norður, skv. upplýsingum heimildarmanns. Meira fæst ekki gefið upp að sinni.

Nær allir leikarar sem stigið hafa á svið hjá LA síðustu ár hafa verið „aðkomumenn“ og hafa einstaka félagar LA gagnrýnt það, að Akureyringar og nærsveitungar fái ekki tækifæri.

Leikfélag Akureyrar á í miklum fjárhagskröggum. Safnað var í digra sjóði þegar allt var í blóma fyrir nokkrum árum, en svo seig á ógæfuhliðina og það er „þyngra en tárum taki“ eins og einn viðmælandi úr innsta hring komst að orði, að stöðuna nú má að stærstum hluta rekja til uppsetningar á söngleiknum Rocky Horror, sem naut gríðarlega vinsælda. Kostnaður var hins vegar svo mikill að tap varð á hverri sýningu.

LA skuldar nú um 80 milljónir króna, þar af rúmar 50 vegna Rocky Horror.

Ýmsar hugmyndir voru ræddar í vetur, með það að markmiði að koma í veg fyrir að starfsemi LA yrði hreinlega lögð niður tímabundið.

Aldrei var þó raunveruleg hætta á því, að sögn heimildarmanns, þrátt fyrir vangaveltur, að starfsemi LA yrði stöðvuð í einn vetur til þess að spara, á meðan starfið yrði endurskipulagt.

Meðal þess sem kom til greina var náið samstarf við Borgarleikhúsið, þannig að Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri þar á bæ, kæmi aftur að stjórnvelinum hjá LA samhliða starfinu hjá LR. Magnús Geir réð sem kunnugt er ríkjum á mesta blómatíma í sögu félagsins, frá 2004 til 2008.

Rætt var í fullri alvöru í vetur að rekstur leikfélagsins yrði færður í hendur Hofs, þar sem Ingibjörg Ösp Stefándóttir er framkvæmdastjóri – en hún var einmitt framkvæmdastjóri LA í tíð Magnúsar Geirs sem leikhússtjóra.

Sunnudagsmogginn veit að mörgum hugnuðust báðar tillögur en ákveðið var að ganga ekki svo langt að sinni.

Stjórn LA mun hafa talið að hugmyndirnar væru þess eðlis að hvorki stjórn LA né Hofs gætu tekið svo afdrifaríkar ákvarðanir, þótt þær kynnu að vera skynsamlegar. Bæjaryfirvöld yrðu að koma að því máli.

Leikfélagið á nú í samningaviðræðum við bæinn og niðurstaða ætti að liggja fyrir fljótlega. Vonast er til þess að samningar náist og þá verði þeim, sem sagt var upp í vikunni, boðið starf að nýju.

Gert er ráð fyrir að farið verði í nokkuð heildstæða stefnumótun fyrir LA, bæði um hlutverk félagins, hvernig samvinnu þess við Hof geti verið háttað og fleira.

Vandamál LA verður ekki leyst án þess að hið opinbera, ríki og bær, komi að málinu. Aðsókn í leikhúsið er svo auðvitað lykilatriði, eins og einn viðmælandi benti á. „Hér verður aldrei atvinnuleikhús nema fólk hafi áhuga á því og sé duglegt að koma á sýningar.“ Ekki hefur þurft að kvarta undan áhugaleysi bæjarbúa og ferðamanna síðustu ár og ljóst að margir bíða næsta leikárs spenntir.

Rocky Horror - Leikfélag Akureyrar - frumsýning í Hofi. Magnús …
Rocky Horror - Leikfélag Akureyrar - frumsýning í Hofi. Magnús Jónsson, sem leikur Frank N'Furter, er fremstur. Skapti Hallgrímsson
Ragnheiður Skúladóttir
Ragnheiður Skúladóttir Sigurgeir Sigurðsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert