Fetar í fótspor Grace Kelly

Bríet Ósk Kristjánsdóttir.
Bríet Ósk Kristjánsdóttir. Mynd úr einkasafni

„Ég hef verið að leika og setja upp leikrit frá því að ég man eftir mér,“ segir Bríet Ósk Kristjánsdóttir, aðspurð um upphaf leiklistaráhugans, en Bríet Ósk mun hefja nám í einum virtasta leiklistarskóla Bandaríkjanna, The American Academy of Dramatic Arts, í haust.  

Bríet Ósk, sem er 22 ára gömul, er stúdent úr Verzlunarskóla Íslands. „Ég fór í Verzló til þess að taka þátt í leikritunum og síðan ég varð stúdent hef ég farið á nokkur leiklistarnámskeið, m.a. í Þýskalandi.“

Fyrr á þessu ári sótti Bríet Ósk um í skólanum og í mars fór hún til London í prufur. „Ég sótti bara um í þessum eina skóla, ég varð eiginlega ástfangin af honum um leið og ég fór að lesa mér til um hann,“ segir Bríet Ósk sem bætir við að líklega hafi listinn yfir fyrrum nemendur skólans heillað hana hvað mest en þeir eru m.a. stórstjörnurnar Adrien Brody, Anne Hathaway, Paul Rudd, Danny Devito, Grace Kelly og Robert Redford. 

Umsóknarferlið langt og strangt

Að sögn Bríetar var umsóknarferlið langt og strangt. „Fyrst þurfti ég að skrifa stutta ritgerð um sjálfa mig og mína drauma. Einnig þurfti ég að skila inn meðmælum, en ég fékk þau frá Gunnari Helgasyni og Jóhannesi Kristjánssyni eftirhermu. Síðan fór ég í áheyrnarprufu í mars.“

Bríet undirbjó sig í um þrjár vikur fyrir prufuna. „Ég tók mér frí í vinnunni til þess að undirbúa mig og lagðist í leikritalestur. Maður átti að vera tilbúinn með tvo einleiki, einn dramatískan og einn kómedískan.“

Eftir prufurnar í London var Bríet ekki viss um að hún hafi komist inn. 

„Mér fannst ekki ganga neitt sérstaklega vel. Prufan var á laugardegi en svo fékk ég bara símtal á mánudaginn þar sem ég var spurð hvort ég vildi ekki koma í skólann. Það kom mér rosalega á óvart.“ 

Annað sem kom Bríeti á óvart var að hún fékk mjög háan styrk frá skólanum fyrir skólagjöldunum. Námið er þriggja ára grunnnám, en Bríet fékk styrk fyrir tæpum helmingi skólagjaldanna. „Það munar klárlega um það því þetta er svo rosalega dýrt nám,“ segir Bríet. 

Staðsetningin heillar

Skólinn er í Los Angeles í Bandaríkjunum og segir Bríet að staðsetningin sé vissulega heillandi. „Mér finnst Los Angeles mjög spennandi borg. Þegar ég ákvað að ég vildi fara í leiklist ákvað ég líka að ég vildi búa þar sem það er sól, ég er örugglega ekki ein um það,“ segir Bríet.

Bríet viðurkennir þó að þetta sé langt að fara og verði vissulega viðbrigði frá Reykjavík. „Einnig var rosalega langt ferli að fá landvistarleyfi. Það liggur við að þeir hafi þurft skóstærðina á öllum fjölskyldumeðlimum áður en mér var veitt mér leyfi,“  segir Bríet og hlær. 

Bríet fer út um miðjan ágúst og mun deila íbúð með þremur öðrum nemendum við skólann. Aðspurð segist Bríet ekki vita við hverju skal búast. „Ég er mjög spennt en er samt að búa mig undir það að þetta verði erfitt.“

Bríet er einnig fær myndlistarkona. Hér sést sjálfsmynd eftir hana.
Bríet er einnig fær myndlistarkona. Hér sést sjálfsmynd eftir hana. Mynd úr einkasafni
Mynd úr einkasafni
Bríet fyrir utan hótelið þar sem prufurnar voru í London …
Bríet fyrir utan hótelið þar sem prufurnar voru í London í mars. Mynd úr einkasafni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert