Slæmt ástand á Hellisheiði

Björgunarsveitir fyrir austan fjall hafa verið kallaðar út vegna slæms ástands á Hellisheiði. Þrír flutningabílar sitja fastir í Kömbunum, póstflutningabíll fór út af veginum og fjöldi fólksbíla situr fastur.

Búið er að loka Hellisheiði frá Hveragerði að Þrengslavegamótum en mjög lítið skyggni gerir ökumönnum erfitt um vik. Björgunarsveitir eru á leið á staðinn til aðstoðar.

Veðurvefur mbl.is

Í ábendingu frá Vegagerðinni segir að hvasst verið vestanlands og sums staðar stormur og víða skafrenningur með éljum. Fer versnandi á leiðinni austur fyrir Fjall og á Mosfellsheiðinni með kófi og takmörkuðu skyggni um tíma í kvöld. Eins við Akrafjall og í Melasveit. Í nótt dregur smámsaman úr snjókomu vindi á norðanverðum Vestfjörðum, en hríðarverður og hvass vindur með skafrenningi á Norður- og Norðausturlandi til morguns.

Uppfært klukkan 18.34

Búið er að loka Hellisheiði, Þrengslum, Sandskeiði og Lyngdalsheiði allri umferð.

Snjóþekja og hálka er á Suðurlandi.

Ófært er með stórhríð og hvassviðri á Holtavörðuheiði en snjóþekja á Bröttubrekku. Ófært er á Fróðárheiði. Hálka og skafrenningur í Svínadal en annars er hálka eða hálkublettir á Vesturlandi og eitthvað um snjókomu eða éljagang.

Á Vestfjörðum er ófært á fjallvegum, til Flateyrar og Suðureyrar. Verið var að opna Kleifaheiði en þar er hálka. Súðavíkurhlíð er lokuð. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og einnig er orðið þungfært og stórhríð á Hjallahálsi. Þæfingsfærð með snjókomu í Dýrafirði.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja og víða er skafrenning eða éljagangur.

Hálka og snjóþekja er á Austurlandi og éljagangur víða.

Hálka, snjóþekja, hálkublettir og éljagangur er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert