Ríkharður: „Svakaleg lífsreynsla“

Húsin í Chautara í Nepal eru illa farin eftir skjálftana.
Húsin í Chautara í Nepal eru illa farin eftir skjálftana. AFP

„Það er svakaleg lífsreynsla að lenda í svona skjálfta og geta ekki staðið,“ segir Ríkharður Már Pétursson, sendifulltrúi Rauða krossins, sem staddur er í „“ Svæðið varð illa úti í skjálftanum 25. apríl sl. og þar létu að minnsta kosti þrír lífið í skjálftanum í morgun.

Ríkharður hefur dvalið á svæðinu í rúmlega viku og verður í fimm vikur til viðbótar. Ríkharður, sem er rafiðnfræðingur, hefur gegnt lykilhlutverki við uppsetningu tjaldsjúkrahússins í bænum og sér hann til þess að rafmagn sé fyrir hendi til að knýja áfram allan aðbúnað heilbrigðisstarfsfólksins.

Hann segir að síðustu daga hafi fólkið í bænum verið farið að flytja í hús sín á ný en flest þeirra eru hrunin eða að hruni komin.

„Síðan kom skjálfti upp á 7,3 stig í dag. Tölurnar segja ekki allt, en þetta var svakalegt,“ segir Ríkharður og bætir við að fólk hafi dottið í látunum og byggingar hrunið. „Allir sem vettlingi gátu valdið hlupu til og byrjuðu að sækja fólk sem slasaðist.“

Tekið hefur verið á móti um hundrað manns á tjaldsjúkrahúsinu í dag og eru þrír látnir. Meiðsli fólksins eru fjölbreytt en margir eru með brotna útlimi, tær og mjaðmagrindur. Enn er verið að leita að fólki í rústunum eftir skjálftann í morgun.

37 eru látnir og rúmlega 1.000 manns eru slasaðir eftir skjálfann í morgun.

Ríkharður Már Pétursson, sendifulltrúi Rauða krossins.
Ríkharður Már Pétursson, sendifulltrúi Rauða krossins. Ljósmynd/Rauði krossinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert