Engar ákvarðanir teknar um tónlistarnám framhaldskskólanemenda

Mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Af vef Ríkisendurskoðunar

Fyrirkomulag á stuðningi ríkisins við tónlistarnám framhaldsskólanemenda er á upphafsreit, enn á eftir að ræða við alla málsaðila og engar ákvarðanir hafa verið teknar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem send var á fjölmiðla fyrr í dag. Þar kemur fram að vegna umræðna í fjölmiðlum um hugsanlegar breytingar á fyrirkomulagi á stuðningi ríkisins við tónlistarnám framhaldsskólanemenda telur ráðuneytið óvarlegt að dregnar séu viðamiklar ályktanir af þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir og stöðu málsins.

“Ýmsir aðilar hafa komið á máli við ráðherra og lýst áhyggjum sínum af núverandi fyrirkomulagi. Ýmsar hugmyndir til lausnar hafa verið viðraðar, þar á meðal að setja á fót nýjan framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu með tónlist sem sérgrein. Til að bregðast við þessu hefur verið skipaður starfshópur með fulltrúum ráðuneytisins, fjármála- og efnahagsmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg. Hópnum er ætlað að gera tillögur um breytt fyrirkomulag á framhaldsnámi í tónlist og tónlistarnámi á 4. hæfniþrepi, sem útfært verður í uppfærðum drögum að frumvarpi tillaga um tónlistarkennslu,” segir í tilkynningu.

Jafnframt kemur fram forsaga málsins sem má rekja til samkomulags um eflingu tónlistarnáms til jöfnunar á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms frá 13. maí 2011, þar sem veitt er kennsluframlag úr ríkissjóði til mið- og framhaldsnáms í söng.

“Rétt er að benda á að aðkoma ríkissjóðs að fjárhagslegum stuðningi við tónlistarnám, sem ákveðin var í samkomulagi um eflingu tónlistarnáms, var tímabundin. Henni var ætlað  að koma til viðbótar lögákveðnu framlagi sveitarfélaga til tónlistarnáms til að greiða fyrir innritun nemenda í tónlistarskóla óháð lögheimilissveitarfélagi þeirra. Í ljós hefur komið að ágreiningur er um túlkun þessa samkomulags og sem meðal annars birtist í mjög alvarlegri rekstrarstöðu flestra tónlistarskóla í Reykjavík,” segir í tilkynningu.

Þar kemur jafnframt fram að fyrrgreint samkomulag hefur í raun verið til umræðu og stöðugrar endurskoðunar allt frá upphafi og í ljós hafa komið fleiri vankantar á því en ágreiningur um túlkun og því telur ráðherra nauðsynlegt að fara í saumana á öllu þessu máli til að bæta stöðu þeirra nemenda, sem um ræðir, gera tónlistarnámið öflugra og reyna finna lausnir að viðvarandi fjárhagsvanda viðkomandi skóla.

Í tilkynningunni er lögð áhersla á að samráð verði haft við alla hagsmunaaðila og þannig reynt að stuðla að því að sátt náist um málið, “enda mikið í húfi fyrir framtíð tónlistarnáms á Íslandi.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka