„Þetta lítur mjög illa út“

„Það verður reynt aftur í dag, það er það sem liggur fyrir,“ segir Lárus Dagur Pálsson, forstjóri Björgunar. Sanddæluskipið Perla sem liggur á botni Reykjavíkurhafnar er í eigu fyrirtækisins. Helmingslíkur eru taldar vera á því að skipið sé ónýtt.

Perla sit­ur enn sem fast­ast í Reykja­vík­ur­höfn en í gær­kvöldi var gerð til­raun til að reyna að dæla úr skip­inu og koma því á flot. Skömmu eft­ir að dæl­ing hófst á tí­unda tím­an­um í gær­kvöldi var hún stöðvuð að nýju þegar glugg­ar í brú brotnuðu og sjór streymdi inn í stýris­hús skips­ins.

Kafar­ar fóru með hlera niður og gerðu til­raun til að loka fyr­ir göt­in en aðgerðum var hætt á tólfta tím­an­um og því er ljóst að Perla mun enn um sinn sitja á botni hafn­ar­inn­ar.

Allt rafkerfi ónýtt og tæki í brú

„Þetta lítur mjög illa út. Það sem liggur fyrir er að allt rafkerfi er ónýtt, öll tæki í brú. Stundum er hægt að bjarga aðalvélum ef búnaðurinn er skolaður og þrifinn í tíma. Það gefur augaleið að allar innréttingar, ýmsir dælumótorar og allskonar búnaður um borð er að öllum líkindum ónýtur,“ segir Lárus Dagur.

Aðspurður segir hann starfsmenn Björgunar ekki vera farna að reikna út hversu mikið tjónið er. Allur kraftur hafi farið í aðgerðir við Ægisgarð sem miða að því að ná skipinu á flot og koma í veg fyrir mengun.

„Það er einnig verið að rýna í hvað gerðist og af hverju þetta gerðist. Þegar við náum skipinu upp vitum við meira um ástand þess og hvernig neðra byrðið lítur út,“ segir Lárus Dagur. „Við viljum fá greiningu á því hvað gerist, allt frá því að ákveðið er að taka skipið niður og þangað til það sekkur.“

Aðgerðir við Ægisgarð í gærkvöldi, miðvikudagskvöldið 4. nóvember.
Aðgerðir við Ægisgarð í gærkvöldi, miðvikudagskvöldið 4. nóvember. mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert