Gengur ekki vel með framenda Perlu

Ekki gengur jafn vel að lyfta framskipi Perlu upp úr sjónum og afturskipinu. Á ellefta tímanum var ákveðið að hætta að dæla úr aftari hluta skipsins og einblína á framenda skipsins. Vel hafði gengið að dæla úr afturskipinu.

Á stokkana tvo sem komið var fyrir á skipinu voru spreyjaðar appelsínugular línur í morgun áður en dæling hófst. Línurnar voru rétt fyrir ofan yfirborð sjávar en líkt og sjá má á myndskeiðinu sem fylgir fréttinni hefur skipið greinilega risið töluvert úr sæ í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert