Perla „þurrausin“ og á floti

Perla er „þurrausin“ og á floti eftir aðgerðir dagsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Verið er að ljúka aðgerðum við Ægisgarð og framhald málsins í höndum rannsóknaraðila, þ.e. lögreglu og rannsóknarnefnd sjóslysa.

Engin olía hefur lekið frá skipinu frá því það sökk.

Hafist var handa við að dæla úr Perlu upp úr hádegi í dag en verkið gekk hægar en gert hafði verið ráð fyrir, aðallega vegna norðanstinnings, segir í tilkynningunni. „Þegar leið á daginn gekk dæling úr Perlunni vel og skipið lyftist allnokkuð. Vandasamt reyndist að halda stöðugleika skipsins, en undirbúningur þeirra sem stýrðu aðgerðinni var vandaður og er skipið nú „þurrausið“ og á floti.“

„Ástæða er til að þakka þeim sem komu að verkefninu fyrir gott samstarf og einurð í að leysa þennan þátt verkefnsins - sem er um margt flókinn og erfiður þeim sem mest á mæddi,“ segir Gísli Gíslason hafnarstjóri.

Örlög skipsins eru í höndum viðkomandi tryggingarfélags, samkvæmt heimildum mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert