Lægðin alveg að ná hámarki

Skjáskot af Nullschool.net

Djúpa lægðin sem gengur nú yfir landið og þá einkum Austurland er við það að ná hámarki en eins og sýnt er á myndrænan hátt á meðfylgjandi mynd má segja að Ísland sé á kafi í lægðinni. Fylgjast má með þróun lægðarinnar myndrænt hér.

Veðurvefur mbl.is

Eins og mbl.is hefur fjallað um er gert ráð fyrir að lægðin ná hámarki sínu á milli klukkan 8 og 9 en hún hefur þegar valdið talsverðu eignatjóni á Austfjörðum. Þá einkum á Eskifirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert