Umtalsverðar framfarir

MAST hefur aðfinnslur ESA til skoðunar.
MAST hefur aðfinnslur ESA til skoðunar. mbl.is/Golli

Úttekt Eftirlitsstofnunar EFTA í október sl. leiddi í ljós umtalsverðar framfarir í opinberu eftirliti með sjávarafurðum á Íslandi. Að mestu leiti hafði verið brugðist við athugasemdum í skýrslu sem ESA gaf út eftir hliðstæða úttekt á árinu 2010.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA en þar segir að helstu niðurstöður úttektarinnar séu að Matvælastofnun (MAST) hefur sett upp eftirlitskerfi í samræmi við löggjöf Evrópska Efnahagssvæðisins (EES). TIl að styrkja framkvæmd íslenskrar löggjafar og til frekari leiðsagnar hafa jafnframt verið gefin út fyrirmæli og leiðbeiningar.

Annmarka varð vart á eftirfarandi sviðum:

  • Í einstaka tilvikum var viðurkenning á starfstöðvum ekki í fullu samræmi við EES löggjöf
  • Dæmi voru um að MAST treysti eingöngu á innra eftirlit framleiðanda þar sem opinbers eftirlits er krafist, t.d. við töku vatnssýna á vinnslusvæðum.
  • Hefðbundið verklag við þurrkun á fiski utandyra hafði ekki verið tilkynnt formlega til ESA.

MAST hefur tekið athugasemdirnar sem settar eru fram í skýrslu ESA til greina og lagt fram tímasetta aðgerðaráætlun sem nú er til skoðunar hjá ESA. Áætlunin og athugasemdir íslenskra stjórnvalda koma fram í viðauka skýrslunnar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert