Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun

mbl.is/G.Rúnar

Sextán ára gamall piltur frá Óðinsvéum á Fjóni hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað 15 ára íslenskri stúlku í bílskúr í Óðinsvéum. Þetta kemur fram í frétt Pressunar í gær en pilturinn var 15 ára þegar brotið var framið. Tvítugur vinur hans var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir aðild að ofbeldinu og eru 12 mánuðir af refsingunni skilorðsbundnir, samkvæmt Pressunni.

Mbl.is fjallaði um málið í september en þá kom fram að kveða ætti upp dóminn í október. Þar kom fram að mennirnir tveir hefðu verið fundnir sekir  um ofbeldið. Fram kom í fréttum þá að framb­urður stúlk­unn­ar sé afar trú­verðugur og grein­argóður, annað en það sem segja má um þá ákærðu.

Frétt mbl.is: Íslenskri stúlku nauðgað í Danmörku

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert