Segir að deilan sé komin í „algjöra vitleysu“

Skipaflotinn bundinn við bryggju í verkfalli sjómanna.
Skipaflotinn bundinn við bryggju í verkfalli sjómanna. mbl.is/Árni Sæberg

Skipstjóri á frystitogara, sem blaðamaður ræddi við í gær, kveðst telja að kjaradeila sjómanna og útgerðarmanna sé komin út í „algjöra vitleysu“.

„Ég held að sjómenn ætli að fá allt og ekki gefa neitt eftir. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Er það ekki alltaf svo þegar tveir takast á að báðir verða að slá eitthvað af sínum ýtrustu kröfum?“ spyr skipstjórinn í Morgunblaðinu í dag og heldur áfram: „Ég held að 90% til 95% sjómanna séu með ágætis laun. Þeir ná engum samningum, ef þeir slá ekki eitthvað af kröfum sínum.“

Þessi skipstjóri telur að fámenn klíka sjómanna stjórni í raun og veru því sem kemur frá samninganefnd sjómanna. „Hinn almenni sjómaður er að mínu mati farinn að hafa mjög miklar áhyggjur af stöðunni.

Sömuleiðis tel ég að þetta sé farið að hvíla þungt á þjóðinni. Ég held hún hljóti að fara að kalla á það að við drífum okkur á sjó. Þetta gengur ekki svona áfram. Við sem erum búnir að vera í mörg ár og áratugi á sjó, erum held ég flestir ef ekki allir sammála um það að þetta er erfiðasta og leiðinlegasta verkfall sem við höfum farið í. Þetta er fyrir löngu komið út í algjöra vitleysu, og sjómönnum er stjórnað af nokkrum hræðum á Facebook, þar sem skætingurinn er ótrúlegur, skítkast og persónuníð. Þessu verður að linna,“ sagði skipstjórinn að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert