Eltust við pissublautan pappír

Lögreglan skipaði stúlkunum að tína upp pappírinn.
Lögreglan skipaði stúlkunum að tína upp pappírinn. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglumenn sem voru á eftirliti um Vesturlandsveg fyrir nokkrum dögum ætluðu ekki að trúa sínum eigin augum þegar þeir óku fram hjá hótelinu á Laxárbakka. Þar höfðu fjórar spænskar stúlkur sest á hækjur sér og voru að pissa á planið.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu lögreglunnar á Vesturlandi. Segir þar enn fremur að lögreglubifreiðinni hafi verið snúið við og ekið inn á bílastæðið við Laxárbakka. Þá voru stúlkurnar komnar upp í bíla og ökumenn þeirra að leggja af stað.

Var fólkið tekið tali og reyndust þetta vera Spánverjar á ferðalagi um Ísland. Var fólkinu gerð grein fyrir því að þessi háttsemi væri ekki í lagi og að Íslendingar gerðu þetta ekki í þeirra heimalandi. Var stúlkunum gert að tína upp pappírinn sem þær höfðu skilið eftir. Þurftu þær að elta pissblautan pappírinn um bifreiðastæðið þar sem nokkur vindur var en lögreglumennirnir urðu ekki sáttir fyrr en öll ummerki voru horfin af vettvangi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert