Áslaug flaug á raflínu og drapst

Heiðagæsin Áslaug átti gott haust í Bretlandi en drapst svo …
Heiðagæsin Áslaug átti gott haust í Bretlandi en drapst svo er hún flaug á raflínu í byrjun þessa árs. Ljósmynd/Náttúrustofa Austurlands

Heiðagæsin Áslaug, sem var ein fimm heiðagæsa sem fengu senditæki á Vesturöræfum í júlí í sumar, er nú öll.

Gæsirnar komust allar til vetrarstöðvanna á Bretlandseyjum sl. haust og hafa þær unað hag sínum vel þar að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunnar Austurlands. 

Nú í byrjun árs bárust hins vegar þær sorgarfréttir að Áslaug hefði drepist er hún varð fyrir því óláni að fljúga á raflínu í Skotlandi.

Senditækið, sem Áslaug var með um hálsinn eins og hinar gæsirnar, slapp þó við skemmdir og verður það notað á aðra gæs á Vesturöræfum næsta sumar.

Hægt er að fylgjast með gæsunum hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert