Umferð um gossvæðið lokað í kvöld

mbl.is/Kristinn Magnússon

Af öryggisástæðum hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að loka fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í Geldingadölum klukkan 21 í kvöld. Þá verða Geldingadalir rýmdir fyrir klukkan 24 eða á miðnætti.  

„Þörf er á að hvíla björgunarlið sem nú hefur staðið vaktina í rúma viku en ekki er sjálfgefið að hægt verði að tryggja öryggi fólks seint um kvöld og að næturlagi við gosstöðvarnar í því margmenni sem þar hefur verið síðustu daga,“ segir í tilkynningu.

Einnig segir í tilkynningunni að til lokana geti komið á Suðurstrandarvegi fyrirvaralaust ef stefnir í óefni með bílastæði á svæðinu eða ef það koma upp aðstæður sem krefjast tafarlausra aðgerða af hálfu viðbragðsaðila.

„Vegna smithættu hefur sóttvarnalæknir eindregið hvatt fólk til þess að vera heima og láta vera að heimsækja eldstöðvarnar. Þar sem eldgosið virðist ekki vera á undanhaldi ætti að gefast nægur tími til að berja það augum en ágætlega lítur út með veður á næstu dögum,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að hlutirnir hafi gengið vel til þessa og enginn slasast illa. „Við viljum vera á þeim stað áfram en til að tryggja það er nauðsyn á að hefta eilítið aðgang fólks eins og hér hefur verið lýst.“

Ákvörðun um opnun Suðurstrandarvegar verður tekin í fyrramálið klukkan 7.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert