Sex tímar gjaldfrjálsir í leikskólum Kópavogs

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi í gær að leikskólar bæjarins verða gjaldfrjálsir í sex tíma á dag. 

Um er að ræða tillögur frá starfshóp um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum í Kópavogi og felast þær meðal annars í auknum sveigjanleika í dvalartíma, tekjutenging leikskólagjalda og heimgreiðslur til foreldra. 

Í tilkynningu frá bænum kemur fram að breytingarnar munu taka gildi 1. september. Þá verður sex tíma dvöl eða skemmri á leikskólum gjaldfrjáls, en áfram verður greitt fyrir fæðisgjöld. 

Dvalargjöld umfram sex tíma taka hækkunum sem fara stigvaxandi með auknum dvalartíma.

Á sama tíma verður komið til móts við tekjulág heimili með tekjutengdum afslætti.

Opnunartími leikskóla verður óbreyttur frá hálfátta til hálffimm en skipulagt leikskólastarf mun einkum fara fram frá níu til þrjú.

Erfiðlega gengið að manna

„Þessar breytingar marka tímamót í skipulagi leikskólastarfs í Kópavogi. Erfiðlega hefur gengið að manna lausar stöður, veikindadagar hafa aukist verulega en á sama tíma hefur kostnaðarþátttaka foreldra lækkað og er komið í 12% af kostnaði leikskóla. Nauðsynlegt er að grípa til aðgerða með það að markmiði að bæta þjónustu og mönnun á leikskólum,“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. mbl.is/Sigurður Bogi

„Tillögur starfshópsins voru unnar í víðtæku samráði við helstu hagaðila og eru breytingarnar sameiginleg sýn þeirra sem tóku þátt í vinnunni. Breytingarnar eru í senn róttækar og spennandi. Með þeim erum við að auka sveigjanleika í leikskólakerfinu og efla leikskólastarfið með hag barnanna í fyrsta sæti, enda er Kópavogur barnvænt sveitarfélag. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og það er mjög mikilvægt að hlúa vel að því, bæði með hag barna sem og starfsfólks að leiðarljósi.“

Takmarka starfsemi milli jóla og nýárs

Í tilkynningunni segir að vonir standa til þess að þær breytingar sem felast í tillögunum muni stytta dvalartíma barna, „enda hafa sífellt fleiri foreldrar svigrúm til þess með auknum sveigjanleika á vinnumarkaði“.  

Þá er lagt til að starfsemi leikskóla verði takmörkuð milli jóla og nýárs, dymbilviku og í vetrarleyfum í þeim tilgangi að bæta starfsaðstæður barna og starfsfólks í leikskólum.

Til að koma til móts við foreldra sem ekki hafa tök á að hafa börn sín heima verða að minnsta kosti tveir til fimm leikskólar opnir hverju sinni og starfsfólk sem þekkir börnin starfandi þar. 

Leikskólagjöld verða felld niður hjá þeim sem ekki nýta þjónustu þá daga sem lokað er. 

Heimagreiðslur

Heimgreiðslur til foreldra verða teknar upp fyrir foreldra barna sem ekki eru í vistun í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 15 mánaða aldri og þar til þau komast í leikskóla eða til dagforeldris.

Upphæðir miðast við framlög með börnum hjá dagforeldrum sem eru í dag 107 þúsund krónur.  

Þá verður farið í samstarfsverkefni um leikskóladeild fyrir fimm ára börn í rými innan grunnskóla Kópvogs með það að markmiði að fjölga leikskólarýmum og styrkja samstarf og samfellu á milli leik- og grunnskóla. 

Starfshópinn skipuðu þrettán fulltrúar starfsfólks leikskóla, foreldra, fulltrúa stéttarfélaga, starfsfólks menntasviðs og kjörinna fulltrúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert