Störfum sendinefndarinnar í Kaíró lokið

Hluti fjölskyldnanna sameinaðist hér á Íslandi í dag.
Hluti fjölskyldnanna sameinaðist hér á Íslandi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sendinefnd á vegum Íslands sem hafði veg og vanda að komu 72 flóttamanna frá Palestínu hefur nú lokið störfum.

Eins og fram hefur komið komu 72 dvalarleyfishafar frá Gasa til Íslands fyrr í dag og hafa þeir nú sameinast fjölskyldum sínum.

Fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu að Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hafi haft átt símafund við ísraelskan kollega sinn þann 28. febrúar síðastliðinn. Í framhaldi af samtalinu fékkst formlega staðfesting og samþykki til ferðar hópsins þann 3. mars. 

„Hópnum var liðsinnt yfir landamærin af íslensku sendinefndinni auk aðstoðarfólks og túlka þann 4. mars og nú í morgun var flogið áleiðis til Íslands,“ segir í tilkynningu. 

Aðgerðin umfram lagalega skyldu 

Jafnframt kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu að undanfarnar vikur hafi sendinefnd utanríkisráðuneytisins verið við störf í Egyptalandi til að greiða fyrir ferð hópsins yfir Rafah-landamærin, en til þess hefur þurft samþykki bæði egypskra og ísraelskra stjórnvalda.

„Aðgerðin er umfram lagaskyldu stjórnvalda og almenna venju, enda jafnan í höndum einstaklinga sem hljóta dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar að komast til Íslands fyrir eigin rammleik. Í ljósi aðstæðna á svæðinu var þó ákveðið að ráðast í einstaka aðgerð þessa efnis í kjölfar umfjöllunar í ráðherranefnd um innflytjendur og flóttamenn, en þar var lögð áhersla á einskiptisaðgerð sem ekki skapaði fordæmi eða umframþrýsting á íslensk kerfi. Á vettvangi nefndarinnar var enn fremur unnin ný heildarsýn í útlendingamálum.

Starfi sendinefndar utanríkisráðuneytisins er nú lokið á svæðinu, en áfram verður fylgst með stöðu mála,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert