Hildur kærir lækni til siðanefndar

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir.
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Að reyna að niðurlægja fólk með því að greina það með downs heilkenni á internetinu er hegðun sem engum lækni ætti að líðast, utan þess að brjóta gegn VII. meginreglu siðareglna,“ segir í kæru Hildar Lilliendahl Viggósdóttur til siðanefndar Læknafélags Íslands á hendur Eyþóri Jónssyni, lækni á öldrunardeild Landspítalans.  

Nútíminn greindi fyrst frá kærunni en í samtali við mbl.is kvaðst Hildur ekki getað tjáð sig um málið að svo stöddu. Kvaðst hún þó ekki heldur vita hvernig Nútíminn hefði fengið kæruna í hendur því það hefði svo sannarlega ekki verið frá henni.

Hegðun sem engum lækni sæmir

Hildur og Eyþór áttu í orðaskiptum í Facebook-hópnum Stafsetningarperrinn þann 21. janúar síðastliðinn en Hildur kærði málið 23. janúar.

Hafði Eyþór verið að þræta við annan netverja þegar Hildur blandaði sér í málið og spurði: „Kæri Eyþór, hver særði þig?“ 

Brást Eyþór illur við og hóf að ausa fúkyrðum yfir Hildi í athugasemdakerfinu. Gaf hann m.a. í skyn að Hildur væri með downs-heilkenni.

„Kæra Hildur, hver gaf þér þennan auka litning sem þú þarft að burðast með allt lífið?“

Telur Hildur ummælin hafa valdið sér skaða og að Eyþór hafi með þeim, ásamt öðrum ummælum, gerst brotlegur gegn siðareglum. 

Meina það sem ég segi

Þá vísar Hildur m.a. til ummæla þar sem Eyþór kvaðst myndu fagna fréttum af andláti hennar.

„Og vittu að ég meina hvert orð sem ég segi… ef ég fengi þær fréttir að Hildur Lilliendahl væri dauð þá myndi ég fagna… vittu það að ég meina það sem ég segi!!!“ sagði Eyþór í athugasemdinni.

Í kærunni segir Hildur þau ummæli sýna virðingarleysi fyrir lífi, velferð og mannhelgi og að hennar mati brjóti þau gegn öllum hornsteinum og anda siðareglnanna.

Ljót hatursnorn og úrkynjuð apína

Sagði Eyþór einnig í fjölmörgum athugasemdum að Hildur væri kvenþjóð og í raun þjóðinni allri til skammar og lýsti henni sem ljótri hatursnorn og úrkynjaðri apínu.

„Þú gerir nú konum engan greiða með því að vera ein þeirra…þær sem ég þekki allavega downplaya líkindi sín með þér og biðjast afsökunar á framferði þínu… og karlahatri… það vill engin kannast við þig Hildur og sjálfur skammast ég mín fyrir að við skulum deila þjóðerni,“ ritaði Eyþór.

„Tilvist þín er svo sannarlega ekki kvenþjóðinni… já eða bara þjóðinni yfir höfuð… til nokkurs framdráttar… Þú ert úrkynjuð apína með skoðanir sex ára barns… og skammastu þín fyrir þína framgöngu í fjöl- og samfélagsmiðlum síðustu áratugi!! Skammastu þín bara þú hatursnorn!! Þú ert ekki eins ljót og þú heldur og þarft ekki að vera svona bitur!!“

Hommi með fleiri „minnihlutahópa“-stig

Svaraði Hildur þá Eyþóri kaldhæðnislega og sagði greinilega gríðarlega mikið í hann spunnið.

„Jahá. Ef karlar eru ánægðir með þig sem málsvara, þá er greinilega gríðarlega mikið spunnið í þá og full ástæða fyrir mig til að vinda mér í að hætta að hata þá.“

Ekki lagðist hæðnin vel í Eyþór sem svaraði um hæl að hún væri viðbjóðslegt eintak af kvenmanni.

„Nú er ég sjálfur hommi og skora því fleiri „minority“ stig en þú… samkvæmt þínum og þinna skilgreiningu… en karlahatur þitt vekur mér slíkan viðbjóð að ég get án þess að hafa nokkra hagsmuni gagnvart kvenþjóðinni sagt… Að þú ert viðbjóðslegt eintak af þessari tegund… Guði sé lof að ekki eru allar eða nándar nærri því flestar konur í nokkru líkar þér og þínu hatri!!“

Saurug norn og lágkúruleg tussa

Hildur virtist ekki kippa sér upp við það og svaraði aftur á kaldhæðnislegum nótum. 

„Ekki halda aftur af þér, elsku vinur. Segðu okkur endilega hvað þér finnst.“

Ekki þurfti hún að segja Eyþóri það tvisvar.

„Ég hef sagt öll þau orð sem þú verðskuldar… þú ert slíkur mannsori að þú verðskuldar ekki það sem að ofan er sagt… Á þig skyldi enginn eyða orðum sínum þú ómerkilega mannslíki saurugrar nornar!!“ skrifar Eyþór og bætir svo við:

„En ef ég þekki þig rétt þá muntu í fyrsta lagi telja þetta rökræður… og í öðru lagi telja þig hafa unnið þær! Það er fólk eins og þú sem gerir samfélagsmiðla skaðlega…. blöðin hefðu aldrei birt orð eftir jafn lágkúrulega tussu eins og þig… þú þrífst á Fb!“

Ekki liggur fyrir hvort siðanefnd Læknafélags Íslands hafi tekið málið fyrir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert