Nýjar reglur um heimsóknir til veitingamanna

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurnesjum hefur gefið út reglur um heimsóknir til veitingamanna í Grindavík.

Á vef Grindavíkurbæjar segir að reglurnar heimili að gestir geti komið í skipulögðum ferðum til Grindavíkur í hópferðabifreiðum enda eigi þeir pantað borð á veitingastað í bænum.

Eftir sem áður er umferð ferðamanna á einkabílum, hjólandi og gangandi óheimil. Í reglunum er útfært nánar hvaða skilyrði skuli uppfyllt til að taka á móti gestum.

„Með þessum reglum má gera ráð fyrir að einstakir veitingastaðir í Grindavík geti fundið rekstrargrundvöll, þó takmarkaður sé, til að opna og auka þannig framboð þjónustu í bænum. Grindvíkingar og aðrir sem eiga erindi í bæinn geta þannig einnig notfært sér þjónustu þeirra. 

Allar reglur sem almennt varða rekstur veitingastaða gilda eftir sem áður og þurfa viðkomandi að ganga úr skugga um að allt slíkt sé til staðar. Það snýr m.a. að heilbrigðiseftirliti og vinnuvernd,“ segir í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.

Hér má sjá reglurnar í heild sinni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert