Apple greindi frá því í dag að fyrirtækið ætli að uppfæra iPhone 12 síma í Frakklandi eftir að eftirlitsaðilar í landinu stöðvuðu sölu á símunum. Meira
Netöryggissveit CERT-IS vekur athygli á alvarlegum veikleikum í snjalltækjunum Mac, iPad og Apple Watch. Meira
Opinberum starfsmönnum í Kína hefur verið bannað að nota síma frá Apple og í kjölfar þess hefur hlutabréfaverð tæknirisans fallið. Meira
Allt bendir til þess að nýjasta iPhone-síma Apple muni fylgja USB-C tengikapall, en síminn verður kynntur til sögunnar þann 12. september. Meira
Ert þú með neyðartengiliði í þínum síma? Meira
Tölvufræðingurinn Karl Thoroddsen hannaði nýverið smáforritið Krimma sem sameinar útivist og ferðalög við bækur og morðgátur. Meira
Óopnaður iPhone sími af fyrstu kynslóð frá árinu 2007 seldist á netuppboði í dag á tæpar 25 milljónir íslenskra króna. Meira
Notendur Android-síma fengu tilkynningu í morgun um jarðskjálfta á Reykjanesskaga. Um er að ræða sjálfvirkt kerfi í Android og er tilkynning send á alla notendur á svæði skjálftans ef hann er talinn 4,5 eða stærri. Fólk með iPhone-síma fékk ekki slíka tilkynningu. Meira
Apple er þekkt fyrir að kynna til leiks nýjar vörur sem breyta algerlega markaðinum. Nægir það að nefna iPod, sem breytti algerlega sölu á tónlist og iPhone, sem varð upphaf almennrar útbreiðslu snjallsíma. Nú í vikunni kynnti fyrirtækið ný gleraugu, sem munu kosta tæpar fimm hundruð þúsund krónur, og vilja sumir túlka sem álíka tímamót og tilkoma iPhone. Meira
Afladagbókin er sögð vera hönnuð með þarfir íslenskra smábátasjómanna í huga og fylgir þjónustan þeim úr höfn og heim aftur. Meira
Á undanförnum vikum hafa fjölmiðlar greint frá því í auknu mæli að AirTag staðsetningabúnaði hafi verið laumað á töskur ferðamanna og staðsetning þeirra rakin. Atvikin hafa vakið mikinn óhug – en hvað átt þú að gera ef þú finnur AirTag sem er að rekja staðsetningu þína? Meira
Uppátæki tveggja íslenskra tvíburasystra hefur vakið heimsathygli á TikTok. Systurnar ákváðu að skiptast á vegabréfum og athuga hvort þær kæmust í gegnum vegabréfaeftirlitið á Keflavíkurflugvelli á leið til Bandaríkjanna. Meira
Um fjórðungi finnst fermingarmyndin sín hræðileg og væri til í að fara aftur í myndatöku. Ríflega helmingur er ánægður með fermingarmyndina sína. Meira
„Að taka flottar myndir snýst ekki bara um að vera með flottan búnað.“ Meira
Love Island-stjarnan Montana Brown opnaði sig á dögunum um óhugnanlegt atvik þar sem ókunnugur maður setti staðsetningarbúnaðinn AirTag á farangur hennar til þess að fylgjast með staðsetningu hennar á meðan hún var á ferðalagi í Los Angeles. Meira
Tónlistarkonan Billie Eilish hefur eytt öllum samfélagsmiðlaforritum úr símanum sínum og segist vera „hamingjusamari en nokkru sinni fyrr.“ Meira
Karen Green fékk iPhone árið 2007, en ólíkt flestum öðrum opnaði hún aldrei kassann. Meira
Innbrot í tölvukerfi tilkynningarþjónustu Sportabler, leiddi til þess að 30.367 skilaboð (e. push notification) voru send út í nafni fyrirtækisins. Taka ber fram að einungis Android-notendur fengu send skilaboð, en iPhone-notendur (iOS) urðu ekki varir við neitt slíkt. Meira
Veðrið virtist, sem áður, Íslendingum ofarlega í huga og var gúglað um það bil 110 þúsund sinnum í mánuði. Meira
Samlokusíminn frá Samsung er einfaldlega allt annars konar tæki en hefðbundnir snjallsímar. Meira