Gott er á milli Roberts gamla Plant, sem frægastur er fyrir að hafa sungið með Led Zeppelin, og fyrrverandi eiginkonu hans, Maureen Plant. Alltént tróð söngvarinn upp í sjötugsafmæli hennar í Bretlandi á dögunum. Meira
Jimmy Page, gítarleikari hinnar víðfrægu rokkhljómsveitar Led Zeppelin, hefur unnið áfangasigur í deilu við nágranna sinn, söngvarann Robbie Williams, en deilan snýst um áætlanir Williams um að byggja neðanjarðarsundlaug undir villu sinni í Kensington í vesturhluta Lundúna. Meira
Mörg dæmi eru um lögsóknir vegna höfundarréttarmála í poppsögunni en Jóhann Helgason hyggst láta reyna á lögin vegna lagsins „You Raise Me Up“ eftir Norðmanninn Rolf Løvland vegna líkinda við lag hans „Söknuð“. mbl.is rifjaði upp nokkur þekkt mál. Meira
„Maður er náttúrlega alltaf undir áhrifum frá þeim sem maður hefur hlustað á,“ segir Ása Ólafsdóttir, ein þriggja ungra kvenna sem skipa sigursveit Músíktilrauna í ár, Ateria. Meira
Hljómsveitin Kolrassa Krókríðandi eða Bellatrix eins og hún nefnist á ensku fagnar í ár 25 ára afmæli sínu og af því tilefni stefnir hún að endurútgáfu sinnar fyrstu plötu, Drápu, bæði í vinyl formi og á geisladiski. Meira
Einn af risum rokksins er fallinn frá. Tónlistarmaðurinn Chris Cornell lést í gær aðeins 52 ára að aldri. Hann fór fyrir Seattle-gruggrokksveitinni Soundgarden en sveitin hélt tónleika í Fox Theatre í Detroit í gærkvöldi. Cornell lést eftir tónleikana en dánarorsök liggur ekki fyrir. En verið er að rannsaka hvort hann hafi framið sjálfsvíg. Meira
Myndband af hinni 10 ára gömlu Johanne Astrid Poulsen trommuleikara fer eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði í hæfileikakeppninni Denmark's Got Talent árið 2017. Hún spilaði á trommur lög á borð við Killing in the Name með hljómsveitinni Rage Against the Machine og Whole Lotta Love með Led Zeppelin. Meira
Bandarískur kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu í dag að breska rokksveitin Led Zeppelin hafi ekki stolið inngangshluta lagsins "Stairway to Heaven" í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar frá hljómsveitinni Spirit sem ekki er lengur starfandi. Meira
Söngvari Led Zeppelin segist lítið muna frá þeim tíma þar sem Stairway to Heaven var samið en þeir Robert Plant og Jimmy Page hafa verið sakaðir um að stela laginu frá annarri hljómsveit. Meira
Liðsmenn rokksveitarinnar Led Zeppelin komu fram fyrir dómara í dag en þeir hafa verið sakaðir um að hafa fengið lagið Stairway To Heaven „lánað“ frá öðrum tónlistarmanni árið 1971. Þeir Jimmy Page og Robert Plant neituðu báðir sök en málið var tekið fyrir í Los Angeles. Meira
Réttarhöldum vegna deilu um höfundarrétt lagins sígilda Stairway to Heaven með Led Zeppelin hefur verið frestað til 14. júní en þau áttu að hefjast í dag. Page og Plant eru ekki þeir einu sem hafa verið sakaðir um lagastuld því Robin Thicke, Sam Smith og Kendrick Lamar hafa einnig staðið í ströngu. Meira
Poppstjarnan Beyonce hefur sent frá sér nýja plötu, Lemonade. Uppátækið kom mörgum aðdáendum hennar í opna skjöldu en platan er sú sjötta í röðinni. Meira
Robert Plant og Jimmy Page, fyrrum liðsmenn rokksveitarinnar Led Zeppelin, þurfa að mæta í réttarsal í Los Angeles vegna deilu um höfundarrétt lagsins Stairway to Heaven. Meira
Elísabet Ormslev er yngsti nemandinn sem hefur verið tekinn inn í söngdeild FÍH, þá aðeins fjórtán ára. Hún lagði söngnámið á hilluna fjórum árum síðar án þess að klára námið, til að einbeita sér að öðru. Núna snýr hún sér aftur af söngnum sem einn þátttakenda í The Voice. Meira
Þórarinn Þeyr Rúnarsson er 11 ára trommuleikari hljómsveitarinnar Meistarar Dauðans. Hljómsveitin hefur tekið upp sína fyrstu plötu sem væntanleg er í verslanir á næstu vikum. Þeir æfa sem óðir í bílskúr í Hlíðunum og semja sína tónlist sjálfir. Meira
Frontmaður Led Zeppelin, rokkarinn Jimmy Page, er kominn með nýja kærustu. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að kærastan er 46 árum yngri en Page. Meira
„Þetta var bara geðveikt,“ sagði einn tónleikagesta eftir tónleika Slash, Myles Kennedys og The Conspirators í Laugardalshöllinni í kvöld. Þar fengu m.a. að hljóma bestu slagarar Guns N' Roses, sem kom viðstöddum í roknastemningu. Meira
Bréf sem tónlistamaðurinn John Lennon skrifaði árið 1971 seldist á 3,4 milljónir króna í seinustu viku á uppboði. Meira
„Mér var hent út í djúpu laugina þegar pönkið var að byrja. 18 ára frá Austur-London með tattú úti um allt og skyndilega var Andy Warhol einn af mínum vinum,“ segir Smutty Smiff þegar hann tekur á móti blaðamanni Morgunblaðsins. Meira
Borgarstjóri Toronto-borgar í Kanada, hinn umdeildi Rob Ford, kom í dag ungstirninu Justin Bieber til varnar, en sá síðarnefndi var ákærður í gær fyrir að ráðast á bílstjóra eðalvagns í borginni í lok síðasta mánaðar. Meira