Þing Kýpur felldi í dag frumvarp um aðgerðir í efnahagsmálum með 23 atkvæðum gegn 21. Samþykkt frumvarpsins er skilyrði þess að Kýpur frá frekari lánafyrirgreiðslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Meira
Kýpur var tilraunadýr fyrir Evrópusambandið vegna aðgerða sem sneru að því að skattleggja bankainnistæður. Þetta sagði forseti Kýpur, Nicos Anastasiades, á fundi í forsetahöllinni í höfuðborginni Nicosiu með fulltrúum frá Evrópuþinginu. Meira
Eigendur flugvallarins í Shenzhen í Kína og fjárfestingafyrirtæki í Hong Kong hafa lýst yfir áhuga sínum á því að festa kaup á alþjóðaflugvellinum í Aþenu höfuðborg Grikklands. Meira
Frestur sem stjórnvöld í Portúgal og á Írlandi hafa til að greiða upp neyðarlánin sem þau fengu hefur verið lengdur um sjö ár. Meira
Seðlabanki Kýpur segir að allir bankar landsins verði lokaðir til næsta fimmtudags. Gripið verður til tímabundinna ráðstafana varðandi úttektir þegar þeir opna, þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst við ESB og AGS um 10 milljarða evra neyðarlán. Meira
Efnahagur Kýpur er „á brúninni“ og þarf nauðsynlega á líflínu frá Evrópu að halda. Þetta sagði stærsti banki eyríkisins, Kýpurbankinn, í yfirlýsingu í dag. „Næsta skref gæti orðið björgun eða eyðilegging efnahagslífsins,“ segir í yfirlýsingu bankans. Meira
Fjármálaráðherrar Evruríkjanna hafa samþykkt að veita Kýpur 10 milljarða evra neyðarlán til að koma í veg fyrir að ríkið verði gjaldþrota. Meira
Grískir skattheimtumenn eru illa launaðir, búa við slæmt starfsumhverfi og um 130 þeirra eiga bankareikninga erlendis sem hugsanlega hafa verið notaðir til þess að komast hjá því að greiða skatta. Þetta kemur fram í trúnaðarskýrslu sem unnin var fyrir Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) og lekið var til grískra fjölmiðla. Meira
Reiknað er með að athafnalífi í Grikklandi verði meira og minna lamað í dag, en verkalýðsfélög hafa boðað tveggja sólarhringa allsherjarverkfall til að mótmæla niðurskurðartillögum stjórnvalda. Meira
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn styður að farin sé sú leið að gefa út skuldabréf í erlendri mynt til langs tíma til að losa um snjóhengju aflandskróna sem eru fastar inn í hagkerfinu. Meira
Auka þarf aðhald í peningastefnu Seðlabanka Íslands svo verðbólga fari niður í verðbólgumarkmið bankans, 2,5%, að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þrátt fyrir góðan gang í íslensku efnahagslífi er hætt við að áhrifa af evrukreppunni gæti hér. Meira
Spánn er á bjargbrúninni. Ávöxtunarkrafan á tíu ára spænsk ríkisskuldabréf hefur hækkað skarpt síðustu daga vegna ótta um að stjórnvöld muni brátt ekki lengur hafa aðgang að erlendum lánamörkuðum. Meira
Ekki er hægt að útiloka að Grikkland verði neytt til þess að yfirgefa evru-svæðið ef stjórnvöld standa ekki við það samkomulag sem gert var við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, segir efnahagsráðgjafi grísku ríkisstjórnarinnar. Meira
Grískir kjósendur hafa með atkvæði sínu ógilt lánasamkomulagið við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta segir Alexis Tsipras, leiðtogi bandalags vinstri flokka í Grikklandi sem leiðir nú stjórnarviðræður. Tsipras segist ætla að tæta í sundur skilyrði lánaáætlunar ESB og AGS. Meira
Alexis Tsipras, leiðtogi vinstriflokksins Syriza í Grikklandi, hefur fengið umboð forseta landsins til stjórnmyndunarviðræðna, eftir að leiðtoga Nýs lýðræðis mistókst að mynda stjórn eftir þingkosningarnar um helgina. Meira
Antonis Samars, leiðtoga Nýs lýðræðis, hefur mistekist að mynda nýja ríkisstjórn í Grikklandi. Það verður nú verkefni Syriza, sem er róttækur vinstriflokkur, að taka við keflinu og hefja viðræður um myndun nýrrar samteypustjórnar. Meira
Meirihluti Grikkja er andvígur kröfum Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frekari aðhaldsaðgerðir í Grikklandi sem settar hafa verið sem skilyrði fyrir frekari efnahagsaðstoð. Meira
Haft er eftir varnarmálaráðherra Grikklands, Dimitris Avramopoulos, á fréttavefnum Euobserver.com að þingkosningar í Grikklandi ættu að fara fram þann 6. maí næstkomandi. Meira
Á síðasta degi vitnaleiðslna fyrir Landsdómi tóku til máls síðustu þrír fjármálaráðherrar Íslands: Árni Mathiesen og Steingrímur J. Sigfússon báru vitni, og Geir Haarde gaf skýrslu. Í vitnisburðum kvað almennt við svipaðan tón og fyrri daga. Mbl.is tísti um gang mála líkt og áður í réttarhöldunum. Meira
Þúsundir Grikkja mótmæla nú við þinghúsið í Aþenu, höfuðborg Grikklands. Fólkið mótmælir niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett ýmsan niðurskurð sem skilyrði fyrir því að veita landinu aðstoð. Meira