Besta bökunartrix allra tíma

Hér er besta aðferðin til að mýkja upp smjör.
Hér er besta aðferðin til að mýkja upp smjör. Mbl.is/bakingkneads.com

Hér færum við ykkur allra besta bökunartrix sem sést hefur til þessa. Splúnkuný aðferð til að mýkja upp smjör í baksturinn.

Það er Abby á Manila Spoon sem deildi þessu ráði á Facebook síðu sinni, en hún deilir uppskriftum, góðum ráðum og myndum af því sem hún tekur upp á hverju sinni. Abby er lögfræðingur að mennt en í dag er hún heimavinnandi húsmóðir og forfallinn matgæðingur. Hér er hennar besta ráð til að mýkja upp smjör án þess að bræða það.

  • Hellið sjóðandi heitu vatni í glas eða annað gler sem þolir mikinn hita.
  • Hellið því næst vatninu af og leggið glasið yfir smjörklumpinn í nokkrar mínútur, sem mun mýkjast upp á augabragði.

Hægt er að fylgjast betur með Abby á manilaspoon.com.

mbl.is/Facebook_Manila Spoon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert