Bleika slaufan sló í gegn

Þjóðin hef­ur lagst á eitt í söfn­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags­ins í ár og í lok október af­hentu for­svars­menn Hag­kaups ávís­un upp á tvær millj­ón­ir króna til Bleiku slaufunnar sem söfnuðust í versl­un­um Hagkaups.

„Í byrj­un októ­ber stóð Hag­kaup fyr­ir söfn­un þar sem viðskipta­vin­um bauðst að styrkja átakið með því að bæta 500 krón­um við inn­kaup sín sem runnu til söfn­un­ar­inn­ar og Hag­kaup lagði til upphæð á móti.” seg­ir Eva Lauf­ey Kjaran, markaðs- og upp­lif­un­ar­stjóri Hag­kaups.  

Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups sagðist gríðarlega þakklátur viðskiptavinum Hagkaups sem styrktu átakið með þessum hætti sem ber merki um samstöðuna sem ríkir varðandi Krabbameinsfélagið sem sinnir einstöku starfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert