Kjötsúpa með asískum kryddum fyrir ævintýragjarna

Þessi kjötsúpa er ólík hinni klassísku íslensku kjötsúpu og rífur …
Þessi kjötsúpa er ólík hinni klassísku íslensku kjötsúpu og rífur í. Asísku kryddin leika við bragðlaukana og er hin fullkomna súpa fyrir þá ævintýragjörnu. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Vetur konungur lætur á sér kræla þessa dagana og jarðhræringar samhliða og þá er ekkert betra en að laga ljúffenga kjötsúpu sem yljar kroppnum. Þessi er kjötsúpa kemur úr uppskriftasafni heimasíðunnar Íslenskt lambakjöt og er mjög ólík hinni klassísku kjötsúpu og leitað er bragða í austurlenskri matargerð. Hér er tilvalið fyrir þá djörfu að leika sér enn frekar með bragðið og breyta og bæta eftir smekk og ævintýragirni og til að mynda nota ögn af kóresku gouchang mauki með í súpuna. Svo má líka nota aðra bita en súpukjöt, eins og gúllas og stytta þannig eldunartímann.

Kjötsúpa með asískum kryddum

  • 800 g lamba súpukjöt (má nota annað feitt lambakjöt)
  • 1,6 l vatn
  • 50 ml sojasósa
  • 6-7 dropar fiskisósa
  • 100 g engifer, skrældur
  • 2 stk. chili
  • 6 geirar hvítlaukur
  • 8 stk. nýjar gulrætur
  • 1 stk. laukur, skrældur
  • 30 g hrísgrjón
  • 1 búnt vorlaukur
  • 15 g kóríander 

Aðferð:

  1. Byrjið á setja kjöt og vatn í pott, stillið á miðlungshita og bíðið eftir suðu.
  2. Á meðan að suðan er að koma upp skerið chili, hvítlauk og engifer í smáa bita.
  3. Því næst einnig gulrætur og lauk í smáa bita.
  4. Þegar suðan er komin upp, fleytið þá froðuna sem kemur í fyrstu suðu frá.
  5. Því næst bætið við sojasósu, fiskisósu, engifer, hvítlauk og chili og leyfið að sjóða í 20 mínútur. Hugrakkir geta bætt við 2 msk. af gouchujang mauki út í soðið.
  6. Bætið við gulrótum, hrísgrjónum og lauk og sjóðið í rúmlega 30 mínútur.
  7. Smakkið til með sojasósu eða salti. Saxið fínt vorlauk og kóríander sem fólk setur í skálarnar rétt áður en súpan er borin fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert