Ljúffengt humarpasta af betri gerðinni

Humarpasta er eðalmáltíð til að njóta um helgina.
Humarpasta er eðalmáltíð til að njóta um helgina. Ljósmynd/Sjöfn

Ljúft er að njóta helgarinnar með góðri máltíð og vel er hægt að mæla með þessu ljúffenga humarpasta. Að laga góðan pastarétt er alls ekki flókið og þegar sjávarfang er sett í pasta tekur stuttan tíma að framreiða dýrindis máltíð sem bragð er af. Humar er sælkeramatur og það er vel hægt að skipta humrinum út í fyrir risarækjur sem bragðast jafn vel og eru fullkomnar í pastarétt eins og þennan. Til að gera máltíðina enn betri er upplagt að bera fram nýbakað ítalskt brauð með, annaðhvort heimabakað eða keypt í handverksbakaríi.

Humarpasta

  • 2 pk ferskt tagliatelle pasta
  • 500 g skelflettur humar (afþíða)
  • 5 hvítlauksrif söxuð eða tvo litla hvítlauka
  • 1-2 sítrónu báta, fer eftir stærð
  • 2-3 stk. ferskt rautt chili, saxað
  • 1 búnt fersk steinselja, gróft söxuð
  • ¼ búnt fersk basilíka, saxa hluta og nýta nokkur heil blöð til að skreyta réttinn með.
  • ½ l rjómi
  • Hvítvín eftir smekk, má sleppa
  • Hvítur pipar eftir smekk
  • Ólífuolíu til steikingar, velja góða ólífuolíu
  • Örlítið smjör til að steikja humarinn upp úr
  • Parmesanostur og ferskar sprettur frá VAXA til að bragðbæta og skreyta í lokin.

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ólífuolíu á meðal stórri pönnu.
  2. Þegar olían hefur hitnað, steikið þá hvítlauk, chili, og ¼ af steinseljubúntinu þar til grænmetið  verður mjúkt.
  3. Léttsteikið humarinn upp úr þessari blöndu og kryddið til með örlitlum hvítum pipar.
  4. Takið humarinn af pönnunni og setjið í skál til hliðar en grænmetið skilið eftir á pönnunni.
  5. Hellið rjómanum út á pönnuna og látið suðuna koma upp.
  6. Lækkið síðan hitann og látið sósuna malla í um það bil 10 mínútur, síðan hvítvíni bætt út í en má sleppa. Ég er ekki alltaf með hvítvín og sósan er ljúffeng án þess líka.
  7. Kreistið einn sítrónubát út í rjómasósuna.
  8. Setjið vatn yfir fyrir pastað í pott og bíðið eftir að suða komi upp.
  9. Setjið pastað út í vatnið og sjóðið eftir leiðbeiningum á pakka.
  10. Hellið vatninu af og setjið pastað síðan á diska eða í skálar sem þið ætlið að framreiða réttinn á eða í.
  11. Mjög gott að setja smá ólífuolíu yfir pastað.
  12. Bætið humrinum út í rjómasósuna, en skilið eftir nokkrar hala til setja ofan á réttinni í lokin, á meðan pasta sýður og látið malla í um það bil 2-3 mínútur.
  13. Síðan er humarpastasósunni dreift yfir pastað á diskunum eða í skálunum með ausu eða skeið á fallegan hátt.
  14. Skreytt og bragðbætt með humarhölum, rifnum parmesanosti, ferskri steinselju, basilíku og sprettum eftir smekk.
  15. Mjög gott að bera fram með heitu ítölsku flatbrauð og vera með þeytt smjör, góða ólífuolíu, gróft salti/saltflögum og oreganó til að dýfa brauðinu í.
  16. Njótið við huggulegheit með góðan drykk við hönd.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert