Viltu borða minna kjöt?

Unnur Guðríður Indriðadóttir, markaðsstjóri Lemon, segir kærkomið að geta boðið …
Unnur Guðríður Indriðadóttir, markaðsstjóri Lemon, segir kærkomið að geta boðið upp á vegansamloku í janúar en teymið á Lemon fékk Ellu Stínu til liðs við sig til að útbúa samlokuna Vegas. Samsett mynd

Á Lemon er í boði ný vegansamloka sem ber heitið Vegas og rauðrófudjús í janúar. Hugsunin er að koma til móts við þá sem eru vegan, grænmetisætur eða bara þá sem langar að breyta til.

„Fyrir eru allir djúsarnir þeirra að sjálfsögðu vegan og próteindrykkurinn Power Plant sem Telma Matthíasdóttir gerði og hann hefur heldur betur slegið í gegn. Hinar sívinsælu partíkúlur Tobbu eru vegan og eru ómissandi með kaffibollanum,“ segir Unnur Guðríður Indriðadóttir, markaðsstjóri Lemon.

Með nýja vegansamloku

„Við erum að prófa okkur áfram með nýja vegansamloku og fengum Ellu Stínu, sem er að útbúa og selja í verslunum frábærar veganvörur, til að koma og smakka hjá okkur Vegas, samlokuna sem við bjóðum upp á í janúar. Vörurnar hennar eru mjög góðar og maður þarf ekkert að vera vegan til að elska vörurnar þær. Ella Stína var ánægð með samlokuna og því ákváðum við að prófa að bjóða upp á hana í janúar,“ segir Unnur Guðríður.

„Ég hef alltaf elskað að koma við á Lemon og hef verið nánast daglegur gestur hjá hjá þeim núna síðustu vikur.  Þegar mikið er að gera eins og hefur verið hjá mér þá er frábært að geta komið við á Lemon og gripið með sér samloku og djús. Þannig held ég orku og góðu jafnvægi,“ segir Ella Stína.

Beetlejuice-djúsinn hennar Hildar Ómars

„Djúsinn sem við bættum við í janúar heitir Beetlejuice og er unninn í samvinnu við Hildi Ómarsdóttur sem heldur úti uppskriftasíðunni hilduromars.is. Hildur hefur ástríðu fyrir góðum mat og er vegan. „Hún hefur drukkið þennan safa í mörg ár og hann hefur verið mjög vinsæll á síðunni hennar. Hann er járnríkur og mjög hollur,“ segir Unnur Guðríður.

Að sögn Hildar hóf hún samstarf við Lemon nýlega, þar sem hún elskar safana hjá þeim og sérstaklega nýju safapakkana Detoxpakka Tobbu og selleríhreinsun Tobbu. Þeir hafa komið henni sérstaklega vel þegar hún vill spara tíma og auðvelda sér lífið, en djús er hluti af hennar daglegu rútínu.

Þeir sem vilja breyta til og borða minna kjöt og kannski meira vegan í janúar geta til dæmis skellt sé á Lemon núna í janúar en þar er sérstakur veganmatseðill þessa dagana sem verður í boði í janúar. Það ættu því allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem það er vegan, grænmetisfæði eða bara til að breyta til.

Hér er veganfjölskyldan á Lemon saman komin.
Hér er veganfjölskyldan á Lemon saman komin. Ljósmynd/Lemon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert