Hollt og gott millimál frá Corny

Gott að vera með hollt og gott nesti og fá …
Gott að vera með hollt og gott nesti og fá sér góða morgunverðarskál áður en lagt er af stað út í daginn. Samsett mynd

Corny orkustangir eru vel þekktar hérlendis en nýlega bætti Corny við nýrri vörulínu með ávaxta smoothie sem kemur í fjórum bragðtegundum. Varan er hollt millimál sem hentar fólki á öllum aldri og er líka frábær í nestisboxið fyrir skólann og til að taka með sér í íþróttir og útivist. Vörunni er einnig hægt að blanda saman við skyr eða grískt jógúrt og útbúa þannig ljúffengar skyrskálar eftir smekk hvers og eins.

Í dag eru fjórar bragðtegundir í boði og þær eru eftirfarandi:

  • Bananar, hindber, bláber og hafrar
  • Bananar, perur, appelsínur og hafrar
  • Mangó, perur og hafrar
  • Epli, jarðarber, bláber og hafrar 

100% náttúruleg hráefni, án viðbætts sykurs og rotvarnarefna

Nýjasta viðbótin er þessi neðsta með eplum, jarðarberjum, bláberjum og höfrum. ,,Corny ávaxta-smoothie er með 100% náttúrulegum hráefnum, án viðbætts sykurs og rotvarnarefna. Varan inniheldur ávexti og hafra og hentar fólki á öllum aldri,“ segir Árni Arnórsson vörumerkjastjóri Corny á Íslandi.

Berglind Hreiðars köku- og matarbloggari hjá Gotterí og gersemar er einstaklega hrifin af Corny vörunum og útbjó nokkrar hollustu skálar sem gaman er að deila lesendum sem geta verið góður innblástur fyrir næstu hollustuskál. Svo getur auðvitað hver og einn útbúið sína skál með sínu nefi auk þess smoothie-ið er gott eitt og sér.

Hollustuskálar Berglindar Hreiðars

Hollustuskál með eplum, jarðarberjum, bláberjum og höfrum

  • Skyrgrunnur
  • 300 g vanilluskyr
  • Corny Smoothie með eplum, jarðarberjum, bláberjum og höfrum.

Toppur

  • Eplabitar
  • Jarðarber
  • Bláber
  • Rapunzel kókos- og möndlusmjör
  • ½ stk. Corny með súkkulaði 

Hollustuskál með bönunum, hindberjum, bláberjum og höfrum

  • Skyrgrunnur
  • 300 g vanilluskyr
  • Corny Smoothie með banana, hindberjum, bláberjum og höfrum

Toppur

  • Granóla
  • Banani
  • Hindber
  • Bláber
  • Rapunzel kókos- og möndlusmjör
  • ½ stk. Corny með súkkulaði

Hollustuskál með mangó, perum og höfrum

  • Skyrgrunnur
  • 300 g vanilluskyr
  • Corny Smoothie með mangó, perum og höfrum

Toppur

  • Granóla
  • Mangó
  • Perur
  • Rapunzel kókos- og möndlusmjör
  • ½ stk. Corny með súkkulaði
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert