Uppáhaldsþeytingur Gwyneth Paltrow

Jana kolféll fyrir þessum góða þeytingi sem kemur úr smiðju …
Jana kolféll fyrir þessum góða þeytingi sem kemur úr smiðju Gwyneth Paltrow og er með bláberjum og engifer. Samsett mynd

Hér er einn æðislegur þeytingur með bláberjum og engifer sem kemur úr smiðju Gwyneth Paltrow sem Kristjana Steingrímsdóttir heilsumarkþjálfi, ávallt kölluð Jana, fann á netinu og varð að prófa. Uppskriftina fann Jana á heimasíðu hennar Goop og heldur Paltrow mikið upp á þennan drykk.

„Þetta er mjög nærandi og hressandi þeytingur. Bláberin eru full af andoxunarefnum, C -vítamíni og trefjum og avókadó gefur góðar fitur og E- vítamín, engifer er hreinsandi og bólgueyðandi, svo þetta er súper góður þeytingur,“ segir Jana.

Jana heldur úti Instagram-síðu þar sem hún deilir með fylgjendum sínum uppáhaldsuppskriftum sem sjá má hér.

Bláberja og engifer-þeytingur Gwyneth Paltrow

Fyrir 1

  • 1 bolli frosin bláber
  • 1,5 bolli jurtamjólk, Jana notar frá Sproud
  • ½ bolli frosið avókadó
  • 1 skeið af óbragðbættu hreinu próteindufti að eigin vali
  • 1-2 döðlur, steinlausar
  • Safi úr 1 mónu
  • Vænn bútur,  ferskt engifer, hreinsað

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið saman í góðan blandara og blandið vel saman. 
  2. Hellið í háglös og berið fram.
  3. Drekkið og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert