Dineout í samstarf við Google

Inga Tinna Sigurðardóttir forstjóri og eigandi Dineout segir að þetta …
Inga Tinna Sigurðardóttir forstjóri og eigandi Dineout segir að þetta sé gríðarlega mikill heiður fyrir Dineout og viðskiptavini þeirra og það sé ekki sjálfgefið að hljóta þessa viðurkenningu Ljósmynd/Dineout

Dineout hefur unnið sér inn rétt til að bjóða viðskiptavinum sínum upp á Reserve with Google bókunarhnappinn þegar leitað er að veitingastöðum sem notast við bókunarkerfi Dineout í leitarvél Google. Dineout er fyrst allra íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja til að fá þennan valmöguleika.

Tíminn styttist í öflun upplýsinga

Samstarfið felur í sér að þegar notast er við bæði leitarvél og yfirlitskort Google, Google Search og Google Maps, til að afla upplýsinga um veitingastaði, birtist bókunarhnappur á Google síðu veitingastaðarins þar sem notandi fer beint á bókunarsíðu staðarins. Með þessu móti styttist tíminn sem það tekur að afla sér upplýsinga um vefsíður og bókanir veitingastaða.

„Þetta er gríðarlega mikill heiður fyrir Dineout og okkar viðskiptavini og er ekki sjálfgefið að hljóta þessa viðurkenningu. Við höfum farið í gegnum langt og strangt ferli hjá Google og er samstarf sem þetta stórar fréttir fyrir íslenska hugbúnaðargeirann í heild og þá veitingastaði sem bjóða upp á borðabókanir hér á landi. Við hlökkum til að kynna okkar viðskiptavini fyrir þessum nýja valmöguleika sem hlýst einna helst þar sem Dineout er með yfir 95% markaðshlutdeild á innlendum markaði og þjónustar rúmlega 400 samstarfsaðila,“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout

Muni auka bókanir á veitingastaði

Talið er tilkoma samstarfsins muni auka bókanir á þá veitingastaði sem notast við kerfi Dineout, þar sem ferðamenn notast við bókunarhnappinn í miklum mæli erlendis. Því mun bókunarhnappurinn án efa gera það að verkum að mun auðveldara verður fyrir þennan hóp að bóka borð á þeim stöðum sem notast við lausnir Dineout.

Um Reserve with Google

Reserve with Google er eiginleiki sem gerir fyrirtækjum kleift að birta og stjórna tímabókunum sínum beint á Google fyrirtækjaprófílnum sínum. Markmiðið er að einfalda bókunarferlið fyrir bæði eigendur fyrirtækja og hugsanlega viðskiptavini. Viðskiptavinir geta skipulagt bókanir með nokkrum smellum án þess að yfirgefa svæði Google, sem gerir það að þægilegri og notendavænni lausn. Fyrir eigendur fyrirtækja þýðir tenging við Reserve with Google færri glötuð tækifæri og skilvirkari tímabókanir. Frekari upplýsingar um Reserve with Google má nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert