Viðskiptavinir Krónunnar söfnuðu 4,5 milljónum fyrir Grindvíkinga

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða …
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. Ljósmynd/Rúnar Kristmannsson

Alls söfnuðu viðskiptavinir Krónunnar 4,5 milljónum króna í neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi þar sem markmiðið er að safna fé fyrir íbúa Grindavíkur. Upphæðin mun renna óskert í söfnun Rauða krossins til að styðja fjárhagslega við íbúa Grindavíkur í kjölfar eldsumbrota á svæðinu. Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum Krónunnar að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín þegar verslað var á sjálfsafgreiðslukössum verslana um allt land yfir tveggja vikna tímabil.

Sýna breiðan stuðning í samfélaginu

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, afhenti Kristínu S. Hjálmtýsdóttur, framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, framlag viðskiptavina í höfuðstöðvum Krónunnar í gær.

„Framlag Krónunnar og viðskiptavina hennar er mjög mikilvægt og sýnir breiðan stuðning í samfélaginu við neyðarsöfnun Rauða krossins, Grindvíkingum til handa,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Guðrún, framkvæmdastjóri Krónunnar, segist ánægð með að geta nýtt lausnir innan verslana til að aðstoða þá viðskiptavini sem vilja leggja sitt af mörkum og styðja bæjarbúa á erfiðum óvissutímum. „Krónan hefur átt í góðu samstarfi við Rauða krossinn í gegnum árin og er ánægjulegt að geta lagt okkar lóð á vogarskálarnar með því að leggja neyðarsöfnuninni lið með þessum hætti. Söfnuninni í verslunum Krónunnar var ætlað að koma til móts við öll þau sem vildu veita bæjarbúum stuðning og sýnir árangurinn bersýnilega hve auðvelt er að virkja samtakamáttinn meðal landsmanna á ögurstundu sem þessari,“ segir Guðrún.

Úthlutað gegnum úthlutunarnefnd

Öllu fé sem safnast í neyðarsöfnuninni verður úthlutað til Grindvíkinga í gegnum úthlutunarnefnd, að undanskildum kostnaði við úthlutunina sjálfa. Úthlutunarnefndin samanstendur af fulltrúum Rauða krossins, félagsþjónustu Grindavíkurbæjar og kirkjunnar í Grindavík. Hægt er að sækja um fjárstuðning í þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu við Tryggvagötu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert