Sleit krossband og verður lengi frá

Sven Botman verður frá næstu mánuði.
Sven Botman verður frá næstu mánuði. AFP/Darren Staples

Hollenski knattspyrnumaðurinn Sven Botman verður frá keppni næstu níu mánuðina eða svo eftir að hann sleit krossband í leik með Newcastle gegn Manchester City í enska bikarnum um síðustu helgi.

Botman er lykilmaður hjá Newcastle og hefur leikið 17 leiki með liðinu á yfirstandandi tímabili. Ljóst er að hann þarf á aðgerð að halda og verður frá næsta tæpa árið.

Ekki er um fyrstu hnémeiðsli varnarmannsins á leiktíðinni að ræða, því hann var frá keppni í þrjá mánuði er hann meiddist í september á síðasta ári.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert