Chelsea – Burnley sýndur beint á mbl.is

Mauricio Pochettino og lærisveinar hans í Chelsea fá Burnley í …
Mauricio Pochettino og lærisveinar hans í Chelsea fá Burnley í heimsókn í dag. AFP/Glyn Kirk

Leikur Chelsea og Burnley í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Stamford Bridge í Lundúnum verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.

Chelsea er í 11. sæti deildarinnar með 39 stig en Burnley er í 19. sætinu með 17 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Chelsea og Burnley í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert