Einn besti leikur ársins á Englandi (myndskeið)

Newcastle og West Ham buðu upp á einn besta leik ársins er þau mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lauk leiknum með 4:3-heimasigri Newcastle.

Alexander Isak kom Newcastle yfir snemma leiks en þeir Michael Antonio, Mohammed Kudos og Jarrod Bowen breyttu stöðunni í 3:1 fyrir West Ham.

Newcastle neitaði hins vegar að gefast upp því Isak bætti við sínu öðru marki og Harvey Barnes skoraði tvö mörk á lokakaflanum. Kom ekki að sök fyrir Newcastle að Anthony Gordon hafi fengið sitt annað gula spjald og þar með rautt spjald í uppbótartíma.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert